mánudagur, maí 9

Hold me closer tiny dancer

Jæja nú er elskan mín komin heim...hún er æðisleg..já ég held bara að þetta sé hún...Alla veganna gerir hún allt til að þóknast mér :)

Helgin búin og fyrsta 7-3 vaktin á morgun..frekar spennt en efast um að ég nái að fara snemma að sofa þar sem klukkan er 12 núna og ég er ekki baun þreytt. Alla veganna
Föstudagurinn var fínn. Fórum á jammið sem fólst meðal annars í því að það var hótað að henda okkur út af Thorvaldsen þar sem Hranfnista var greinilega í vettfangsferð. Ég bragðaði líka mína fyrstu Margarítu...get ekki sagt að ég sé fan...hnerraði eiginlega og það datt allt úr glasinu :/ Þetta var nú eiginlega í fyrsta sinn þar sem ég fer á jammið og þekki fullt af fólki..sumir myndu segja að það væri afþví að ég fer svo sjaldan á jammið en ég held ekki :þ
Laugardeginum var að mestu eytt með dömunum sem við drógum með okkur heim (Anita og Tinna) í þynnku og Sex and the city :) Svo um kvöldið fórum við með settinu á Lækjarbrekku sem að sjálfsögðu klikkar ekki!!!!! Svo fórum við í mat í keflavík í dag sem er nú næstum eins og að borða á veitingahúsi...alltaf góður matur á þeim bænum :) Og ég fékk Ipodinn minn :) jíjí Telma var nú reydnar næstum búin að gleyma honum uppá flugstöð..ja eða næstum já hún gleymdi töskunni með honum uppá velli ...en fékk hana aftur nó prob.. Með þeim Telmu og Magga kom nú bara frekar myndalegur ameríkani sem er 23 og mun vera hér í sumar að spila fótbolta með...jæja einhverju liði. Og þá var að sjálfsögðu lofað að taka hann á jammið hérna í bænum..maður verður nú að spilla svona saklausum könum..múihahahahaha Ninna mín are you up for spoiling a young american ;)
En já núna er ég að fylla elskuna mína af lögum og ýmsum fróðleik :) I love my baby

5 ummæli:

anitahaf sagði...

hæ!

ég þarf endilega að vera aftur svona þunn heima hjá þér... svo mikið af sex and the city eftir ;-)

og til hamingju með nýjasta fjölskyldumeðliminn!

Henný sagði...

takk takk við erum mjög stolt af henni :) strax byrjuð að syngja og alles ;)

anitahaf sagði...

ohhh... er hún svona vel gefin!... á nú ekki langt að sækja það heldur ;-)

Nafnlaus sagði...

Biddu bíddu bíddu... er Ninnz ekki í strákabindindi til tvöþúsundogSEX!!!! hummm...

Nafnlaus sagði...

gefa honum nammi á mánudegi!!!!
*hóst,hóst*