föstudagur, október 13

Rölt um Clapham

Vá við erum að horfa á myndina Death of a President. Vá hvað hún er innilega góð. Þeim tekst að gera þetta alveg ótrúlega vel. Þetta er alls ekkert anti Bush dæmi heldur er þetta bara what if. Maður er alveg ótrúlega inní þessu og spenntur.

Við eyddum deginum í dag í að labba um Clapham hverfið í suður London. Það var nú engin sérstök ástæða fyrir því að við gerðum það nema að Gauja langaði að kíkja í ASDA sem er rósastór verslun þarna niður frá. Það var alveg æðislegt veður og við áttum mjög góðan dag :)
Ekkert planað fyrir morgun daginn.. langar að kíkja á einhvern markað..vitum ekki alveg :-Þ

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Gaman að lesa hjá þér síðuna og fylgjast með þvi sem þið eruð að bralla þarna í Englandalandi. Ég fylgist með þó svo að ég sé ekki duglegasti maður í heimi að kommenta inn á bloggið þitt. Hafið það sem allra allra best.
Henning stóri frændi

Nafnlaus sagði...

Hvernig gengur í vinnunni hjá Gauja?

kv,
ÞJH

Nafnlaus sagði...

hæ hæ smá hugmynd fyrir verkefnið??
þú sannfærir kennarann að hvergi sé betra að búa en á Íslandi vegna veðurblíðunnar hér...
kv. Mamma

Nafnlaus sagði...

he he... sammála uppástungu móður þinnar f. sannfæringarverkefnið :-)

er gaui kominn með vinnu????

Nafnlaus sagði...

og svo langar mig líka bara að segja takk æðislega fyrir síðast... frábært að koma til london, ég er alveg sérlega þakklát fyrir að þið eigið heima þar (auðvitað betra að hafa ykkur í kallfæri á íslandi, en skárra í london heldur en einhversstaðar þar sem er enn verra að ná í ykkur skilljú ;-) ...og bara já, takk fyrir gestrisnina og samveruna í londontávn!

knús í krús sem ekki má loka... nei... ást í poka... hmmm... æih...