þriðjudagur, mars 20

Fyrsti fyrirlesturinn búinn :)

Haldið þið að maður sé ekki búin með fyrsta fyrirlesturinn á ensku :)
Þetta er búinn að vera rosalegur rússíbani hehehe
Byrjaði á því að þegar ég kom úr veikindarfríinu mikla var hópurinn minn búin að flytja fyrirlesturinn þó svo að þau vissu að ég væri veik..gerðu bara ráð fyrir að ég kæmi með vottorð...ég var frekar fúl afþví ég fór ekkert til læknis..var bara með flensu en maður fer víst til læknis hérna útaf smá hnerra eheheh allaveganna var lítill möguleiki á að ég fengi læknavottorð...og ef ég skilaði ekki þessu verkefni myndi ég falla í áfanganum.. en kennarinn sagði að ef ég gæti farið í annan hóp yrði þetta í lagi...þannig að ég er frekar þunglynd þegar ég labbaði útá strædó stoppustöð afþví að eina stelpan sem ég þekki í áfanganum var löngu farin heim og ég hafði ekki símanúmer eða neitt hjá henni. En hver haldiði að sé á strædó stoppu stöðinni :) Og ég spurði hana hvort það væri pláss í hópnum hennar..og hvað haldiði :) Jey ég var þá komin í hóp. Við hittumst svo eftir tímann daginn eftir og við ræddum um hvað verkefnið var...þá hafði enginn gert neitt ekki einu sinni byrjað að lesa og það voru tvær vikur síðan okkur var gefið þetta verkefni..þannig að super bitch byrjaði að skipuleggja og við ákváðum að fara í sitthvora áttina og koma svo saman eftir helgi (í gær) og setja þetta saman í fyrirlestur. Við hittumst í gær og engin er búin að gera neitt, nema gull engillinn ;-) að sjálfsögðu. Þannig að super bitch fer í gírinn og setur þeim hinum fyrir hvað þau verði að gera fyrir morgunn daginn (í dag). Þau sögðu mér að þau hefði fengið tíma klukkan 13:30 til að flytja fyrirlesturinn en við yrðum að vera mætt klukkan 13:00. Ég hendi saman einhvernjum fyrirlestri þarna á staðnum og segi þeim að ransaka þá hluti sem ég setti þeim fyrir hehe. Síðan ákveðum við að hittast daginn eftir klukkan hálf 11 og þá myndum við klára þetta og æfa okkur...nægur tími....
Eeenn þau mæta að sjálfsögðu hálftíma og eru ekkert búin að lesa eða undir búa neitt...ég aftur á móti hafði klárað minn part og dundaði mér þá við að gera fyrirlesturinn flottari og byrjaði á bibliography-inu. En viti menn klukkan tuttugu mínotur í 12 fattar liðið HEY við áttum ekki að mæta eitt heldur klukkan TÓLF!!!! Við eigum eftir að gera bibliography og gera handout með nokkrum punktum fyrir kennarann og nemendurna.....en þá er allt í einu voða merkilegt að skila einhverjum bókum á bókasafnið fyrir vinkonu mína og gaurinn í hópnum hverfur bara og lætur ekkert vita af sér. Ég fer á overdrive og flýti mér að henda saman réttu Harvard bibliography og ákveð á staðnum hvernig við reddum okkur útúr þessu með handout-ið
Ég hleyp um allt og reyni að redda á meðan eru hópfélagar mínir að segja mér að róa mig niður við reeeeddum þeeessu bara og eitthvað...ég ekki alveg í skapi til að heyra þetta kjaftæði afþví þetta var allt þeim að kenna og ég ætlaði sko ekki að falla í áfanganum afþví þau voru löt!!!!! En við náðum að redda þessu útaf því að hópurinn á undan okkur var eitthvað í rugli...Við förum upp, ég var síðust í hópnum, þau stama og hiskta. Týna hvar þau eru og þurfa að byrja á öllu uppá nýtt og ég veit ekki hvað ..einn stoppaði meira að segja í miðjum fyrirlestri og sagði upphátt "Um hvað er ég að tala"!!!!!!!!!!! Svo skelli ég mér upp og stend mig (samkvæmt mér ;) ) frábærlega stama ekkert og útskýri mitt eins og útskýrimeistari og þegar þau hiksta eins og fífl í niðurstöðunum tek ég það að mér að útskýra það fyrir þau eheheheh
Þetta var alveg hörmulegt viðfangsefni sem við vorum með The problems with Habermas´s Public Sphere and can it be applied to the media today....Tek það fram að stelpu asninn sem heimtaði þetta viðfagnsefni mætti hvorki í undirbúningsfundina okkar né blessaðann fyrirlesturinn....þetta lið er alveg rúglað eheheh
En ég held að mér hafi bara gengið mjög vel :) kennarinn virkaði allaveganna ánægður og við fáum bráðlega Feedback sheet :) Kvíði pinku fyrir en er samt bjartsýn :)Svo er Lovísa sæta að koma til okkar eftir minna en tvær vikur og svo förum við til Róm strax eftir að hún fer þannig að ég hef ýmislegt til að dreifa huganum :) Svo erum við búin að panta okkur flug heim í sumar þannig að nú er bara að plana hvenær á að hitta hvern :)
Bara emeila ef þið viljið bóka tíma :)
Ástarkveðja

3 ummæli:

Unknown sagði...

you are my sunshine my only sunshine hehe vá á á á þetta eru dugnaðarforkar sem eru í námi með þér :( en þú ert laaaaangflottasta bitchið sem ég þekki. Go Henny go go. love ya

Nafnlaus sagði...

sko... er þetta ekki bara akkúrat það sem þú þarft að hafa til að fara að vinna við það sem þú vilt fara að vinna við... bitch-hæfileika dauðans.. sjálfsbjargarviðleitni meðalíslendings... oooog skipulagshæfileika a la monica ;-) ...þú hefur þetta allt, átt eftir að ace-a þetta nám hvernig sem á það er litið! :-)

Nafnlaus sagði...

Ohhh my God... ein góð á því... Vá hvað ég hefði ekki höndlað þessar aðstæður verið eins og sheep í staðinn haha.. í annað æðislegt að þið ætlið að kíkja til Rómar og hafa það nice um páskana. Kraftur í þér kona... Hafið það sem allra best og vonandi að við getum kannski hist á ísjakanum í sumar...
Bon Viaje!!