laugardagur, júní 9

Another day another dollar

Heil vika búin í nýju vinnunni :)
Ég er mjög ánægð í vinnunni þetta er alls ekki það auðveldasta sem ég hef gert en það er bara skemmtilegt. Ég vinn til að byrja með frá 12:30 til 17:30. Seinna ræð ég meira sjálf hvernig er best fyrir mig að mæta :) Ég er að fá 8 pund á tímann sem gerir að með fimm tímum á dag er ég að fá 800 pund á mánuði sem ég kalla bara ágætt :)
Fyrsta vikan er búin að vera fín..þegar ég kom heim eftir fyrsta daginn, mánudag, var ég komin upp í rúm klukkan hálf átta og sofnuð átta!!! Vaknaði svo hálf sjúskuð klukkan fjögur um morguninn hehehe en neyddi mig til að sofa til níu. Kvöldið eftir var hátta tími klukkan tíu hehe og hefur hann verið svipaður alla vikuna...nema í gær hehehe þá sat ég uppi í rúmi og gat ekki sofnað...datt útaf loksins um 3 hehe hafði sem sagt sofið minn skammt í vikunni hehheheheeh
En á miðvikudaginn fórum við í leikhús með vinnunni minni :) Batboy the musical. Þetta var félagsleg ádeila hehe en mjög fyndið og skemmtilegt...og ég plataði eiginlega Gaua greyið á þetta eheheh ég vissi ekki að það væri leikur í gangi á meðan leikritið var...ég hringi í gaua og spyr hann hvort hann vilji koma með, hann eigi bara að hitta okkur á skrifstofunni um fimm..hann greyið hélt að leikritið væri rétt eftir fimm en hann gleymdi að hann er í bretlandi og þar er sko fengið sér nokkra drykki áður en menn fara nokkuð..þannig að leikritið var akkúrat á meðan báðir leikir áttu sér stað...en hann skemmti sér mjög vel og sá alls ekki eftir að hafa komið með.
Líka gaman að prófa eitthvað nýtt. Við hefðum líklegast ekki nennt að fara í áhugamannaleikhús svona uppá okkar eins dæmi..en fyrirtækið mitt keypti böms af miðum afþví einn starfsmaður er í leikritinu :) Allaveganna rosalega gaman

Svo er ég búin að skipta um nám :) Jibbí, núna er ég að læra Music and Media Management. Þetta er mikið hentugra nám heldur en það sem ég var að læra. Ekki barað fræðilegt nám, ekki bara ritgerðavinna. Heldur er manni kennt allskonar hlutir sem gagnast manni þegar maður kemur út á vinnumarkaðinn :)

Jæja ég ætla að halda áfram að pakka...erum að fara til frakklands eftir nokkra klukkutíma :)
Hasta lavista múahahahha

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Góða skemmtun í Frakklandi elskurnar mínar.
Sjáumst svo fljótlega á Klakanum:)
Kveðja Ninna

Nafnlaus sagði...

Hafið það gott í France. Ef gott veður verður á vegi ykkar þá megið þið alveg vísa því leiðina hingað á klakann :)
Katrín

Nafnlaus sagði...

Hva bara alltaf á ferðinni :)
Vona að þið hafið það gott í Frakklandi...
Kv af klakanum
Dögg

Nafnlaus sagði...

Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag, hún á afmæli hún Henný, hún á afmæli í dag jeyyyy
Til hamingju með daginn :)
Úff þið gerið mig svo gamla með því að eldast svona hratt :>
hehe love ya.
Mamma

Nafnlaus sagði...

Congrats Henny, gjöfin býður þín hér heima á klakanum. Sjáumst fljótlega ;-)