Vöknuðum eldsnemma til að fara í Empire State. Náðum að vera komin þangað 15 mín fyrir opnun. Það var samt röð sem náði útúr byggingunni en var ekki löng. Þar sem við komum fyrir opnun var ekki röð inni líka til að fara í öryggis tékk og kaupa miða og svo framvegis..ef við hefðum verið þar sem við vorum og það væri búið að opna hefðum við þurft að bíða í nokkra klukkutíma en sem betur fer biðum við ekki meira en í hálftíma eða eitthvað. Fórum í öryggis tékkið og svo beint í hraðlyftu uppá 80 hæð þar sem við skiptum um lyftu og fórum þaðan uppá 86 hæð. Þetta líka rosalega útsýni blasti við manni þegar maður gekk úr lyftunni. Ég var ekkert hrædd (frekar montin með mig) en ég varð smá sjóveik því að byggingin sveiflaðist svolítið í rokinu. Við löbbuðum marga hringi og tókum margar myndir. Reyndum enn og aftur að hringja heim en virtumst ekkert kunna á þessa tíkallasíma þarna í kanalandi. Fórum svo á Starbucks og fengum okkur morgunmat. Fyndið að þetta sem maður var búin að bíða eftir leeeeengi tók rétt rúman klukkutíma. En þetta var svaka ævintýr. Við gengum svo inní Hell´s Kitchen sem er soldið sjabbí hverfi. Þar var samt stór skemmtilegur markaður. Sáum alveg helling sem okkur langaði en ekki auðvelt að flytja húsgögn með sér heim hehe Röltum svo upp 8 th avenue og komum við á diner í leiðinni þar sem Gaui fékk sér the new york classic Pastrami samloku. Héldum áfram um 8th þangað til við komum að Columbus Circle þar sem við gengum inní Central Park. Það var loksins farið að hlýna og gátum notið þess að vera í garðinum. Fórum loksins í dýragarðinn Guðjóni til mikillar gleði. Svo var haldið í F A O Schwartz en það var svo brjálað að gera þar að það var ekki verandi þarna inni. Löbbuðum svo að Madison Avenue og löbbuðum upp hana að hótelinu sem tók alveg tvo tíma. Gaui var lítið hrifin af öllum snobb búðunum hehehe :)
Það þarf svo sterk bein til að vera ég!!!
þriðjudagur, apríl 1
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)





Engin ummæli:
Skrifa ummæli