þriðjudagur, janúar 31

Vúhú

Haldiði að maður hafi ekki verið í brúðkaupi um helgina..Hann óli tengdó og dóra hans tóku sig til á föstudaginn og giftu sig bara tvö ein í kirkju í njarvík :) fór svo út að borða á argentínu og gistu svo á hóteli í bænum. Um daginn fór dóra í dekur á snyrtistofu og alles.. sem sagt frábær dagur fyrir þau. :) Svo buðu þau okkur í alveg dýrindis máltíð á laugardaginn :)
Innilega hamingju óskir til þeirra :) Þau eiga þetta sko skilið :)

föstudagur, janúar 27

Come to the light

Það er nú margt og mikið að frétta en það sem ber hæðst er að ég hef fundið trúnna og hægt er að berja goðið augum með því að smella á linkinn hérna að ofa...
meira seinna Hoff blessi ykkur

miðvikudagur, janúar 18

Algjör pæja

Ég tók svona test á netinu til að kann hvort ég væri meira Jennifer Aniston eða Angelina Jolie... og þetta eru niðurstöðurnar:
Jengelina
You're in touch with your sexy side as well as the part of you that feels just like that girl next door. Other Hollywood women who balance their naughty and nice sides include Drew Barrymore, Catherine Zeta-Jones and Jennifer Lopez. While you enjoy being appreciated for your physical attributes, you want the man in your life to appreciate your smarts and your other sensibilities as well.

Manni er nú líkt við ekki verra fólk en Jlo og Catherine Z... og svo er náttlega Drew Barrymore bara æði þannig að sama hvað hver segir þá er ég lík þeim öllum að innan sem utan og ég mana ykkur til að mótmæla!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

þriðjudagur, janúar 17

Föreyjanna

Fyrir þá sem misstu af minni frábæru framistöðu í Færeyjum geta þeir smellt á linkinn að ofan :) Go Færeyjar

þriðjudagur, janúar 3

Jólin farin

Jæja þá eru jólin búin og næsti frídagur er ekki fyrr en í fyrsta lagi í mars. Jedúdda mía en hvað haldiði að mín sé að fara Færeyja næstu helga :-) Í þrjár nætur stanslaust stuð :-) Svo hlakkar manni alveg ofboðslega til að fara til Mallorka í vor..eiginlega of mikið :-Þ
Svo er ég enn að bíða eftir niðurstöðum frá TOEFL og svari frá Ucas þannig að það er allt að gerast :-)
Gamlárskvöld var náttlega bara æði. Dansaði eins og brjálaðingur lang undir morgun og vaknaði frekar seint daginn eftir.....þessir foreldrar virðast ekki ennfarnir að skilja til hvers þeir eru hérna...jæja nægur tími til að aga þau til :-)
Kveðja úr teigabyggðinni