föstudagur, desember 28

Jóla hvað

Mér finnst frekar ótrúlegt að jólin séu að vera búin!!
Búin að hafa það rosalega fínt þessi jól...en þau liðu nú alltof hratt.
Ég fékk mikið af flottum gjöfum :)
Eins og nýja digital myndavél :) Gaui meiri druslan heeh við lofuðum að gjafirnar yrðu ekki dýrari en fimtíu pund en hann gaf mér rándýra myndavél!! hehe
Frá mömmu og pabba fékk ég mighty mouse en átti svoleiðis fyrir :( með snúru þannig að ég verð að skipta þeirri þráðlausu en ég finn mér eitthvað flott í applebúðinni :) lítil hætta á öðru. Svo fengum við Gaui Nintendo DS lite saman frá þeim gömlu.
Fengum frábærlega flott sængurver frá ömmu :) eimitt það sem okkur vantaði :)
Og fengum helling fleira flott :)
Tel það upp í næstu færslu :)
Set þá líka inn fleiri myndir :)

fimmtudagur, desember 13

Jólahreingernignar

Það á sko ekki að leyfa mér að horfa á Oprah eða neinn svona þátt hehe...sit hérna og græt eins og fífl ehheeheheh Er að fylgjast með strák sem er búinn að vera blidnur frá því hann var 3 ára..hann hefur þróað með sér þann hæfileika að hann klikkar með tungunni í góminn og heyrir þegar bergmálar til baka...hann getur gert greinarmun á hvaða hljóð kemur til baka og veit þá hvaða hlutur er til staðar og úr hverju hann er !!! ótrúlegt...þetta er víst svipaður hæfileiki og höfrungar hafa!!
Er að taka mér stutt frí frá jólatiltektinni :) er búin að vera frekar dúleg í dag ef ég segi sjálf frá :) Það er nú ekki hægt að hafa allt í drasli þegar anita kemur á laugardaginn eheheh :)

Eins og flestir vita lenti pabbi minn í frekar leiðinlegri reynslu um daginn þegar tveir menn brutust inn til mömmu og pabba...en sá gamli held his own eins og þeir segja og náði inn nokkrum vel völdum höggum hehe :) Ég er ekkert smá fegin að það er allt í lagi með hann afþví þetta hefði geta farið miklu verr. Núna get ég ekki beðið eftir að fara heim og faðma hann og tryggja að það sé allt í lagi með hann og segja honum hvað ég elska hann mikið!!


Skelli hérna inn nokkrum velvöldum myndum ;)

Bæði ný klippt og flott :)


Grýla og sonur hennar ;)

föstudagur, desember 7

Tími á updeit

Kannski komin tími á smá fréttir :)
Ég náði að klára ritgerðina sem ég var búin að vera bögga allan sem voru til að hlusta með!!! En hún er allaveganna búin og ég vona innilega að hún sé nógu góð!
Svo lenti ég í klikkuðu veseni útaf áfanga valinu mínu fyrir næstu önn!!! Hérna fá allir sinn eigin námsráðgjafa sem á að hjálpa manni. Ég hef átt í miklu veseni með minn!! En allaveganna þá var eitthvað vesen með mitt áfanga val (aðallega mér að kenna) þannig að ég reyndi og reyndi að hafa samband við minn ráðgjafa en hann var aldrei við þegar ég fór á skrifstofuna hans og svaraði ekki emailum. Ég hef talað um þetta við nokkra kennara og þetta er víst algengt með þennan gaur!!! Á endanum bauðst einn kennari sem er líka námsrágjafi til að hjálpa mér. Ég fer og tala við kennarann en ég hafði gert einhverja villu á námsvalsblaðinu og þegar við ætluðum að leiðrétta það lá networkið niðri í kennarablokkinni!!! þannig að ég varð að bíða...á endanum segir hann að ég geti bara farið og komið aftur á morgun!!!! Og þá á ég að tala við samstarfskonu hans. Fine ég klára allt þetta heima og fer dagin eftir að hitta samstarfskonuna, sem er satt að segja létt geggjuð!!! er öll á yði og einhvern vegin hoppandi...talar voða hratt með rússneskum hreim. Henni fannst valblaðið of út kortað og var að deyja úr hneykslan yfir þessu ...það væri bara móðgun við skrifstofuna að skila þessu inn og ég veit ekki hvað...þetta er sama skrifstofan og er þekkt fyrir að týna gögnum þannig að mér var svosem sama hvort þau fengju útkrotað blað eða ekki en lét eftir henni og brosti bara eins og fífl. En hún var samt ekkert nastí eða neitt bara ótrúlega rúgluð eitthvað eheheheh Aníhú
Svo kom í ljós að ég klikkaði víst eitthvað í nýja valinu líka....veit ekki alveg hvað ég hef verið að hugsa undan farið en hef verið voða "ekki á staðnum" hehe en hún fer svo yfir ferilinn minn og endurtekur alltaf að ég ætti að tala við námsráðgjafann minn og heimta að ég fengi einhverja áfagna metna frá því í fyrra. Ég segi endalaust ég er búin að tala við hann og hann vill þá að ég taki bara tvo áfanga á næstu önn og ég sé ekki sátt við það. En hún heldur áfram að tala um þetta og á endanum gef ég eftir, hún bara að reyna að hjálpa mér kerlinga ræfillinn. Ég fer niður og reyni að tala við námsráðgjafann minn afþví að ég veit að hann á að vera með skrifstofutíma þennan dag. Finn hann hvergi. Tala við yfirmann námsráðgjafanna sem aðstoðaði mig :) og færði yfir áfanga frá því í fyrra og ég fer í fjóra kjarna áfanga og stytti þar afleiðandi námið mitt eitthvað :)

Í gær fórum við í Jack the Ripper tour :) Nokkir úr vinnunni hjá Gaua skipulögðu ferð og buðu okkur að koma með :) það var alveg svakalega gaman :) Gengum um City og east london ( í smá rigningu) og lærðum um Jack the Ripper og fórnarlömb hans. Geðveikt áhugavert og svaka gaman :) Eftir túrin fórum við á svaka góðan stað einhverstaðar í Whitechapel. Staðurinn var BYOB eða bring your own booze hehehehe Skelltu sér allir í Tesco áður en við fórum á veitingastaðinn og keyptu sér áfengi Okkur fannst þetta frekar skrítið hehe en svo þegar við komum á staðinn sáum við að það gerðu þetta allir ehhe Maturinn var svaka góður!!! indverskur sterkur og bragð góður :) Og við hlóum mikið og ræddum allt milli himins og jarðar. Enda fólk þarna frá öllum heimshornum. Afríku, Indlandi, Íran, Ástralíu og náttúrulega íslandi ;)

Hérna koma nokkrar myndir úr jólagöngutúrnum okkar sem við fórum í síðustu helgi :)







fimmtudagur, desember 6



Þú ert léttsteikt dramadrottning.




Ef dramadrottningar væru hamborgarar sem fengjust
"rare",
"medium rare",
"medium"
og "well done"
værir þú "medium rare", léttsteikt og meyr undir tönn. Léttsteiktar dramadrottningar eru ávallt gerðar úr besta hráefni. Þær eru lífrænt ræktaðar og því í raun móðgun að líkja þeim við hamborgara. Nær væri að framreiða þær sem steikur með góðri rjómasósu og bökuðum kartöflum.



Léttsteiktar dramadrottningar skammast sín ekki fyrir að vera dramadrottningar. Þvert á móti eru þær stoltar af því og leggja rækt við þann hluta persónuleika síns. Gott jafnvægi ríkir á milli drama og yfirvegunar. Í raun hefur léttsteikta dramadrottningin fulla stjórn á dramatíska hluta heilans. Hún er því fær um að halda dramanu í skefjum þegar við á en gerir út á það þegar hún er í stuði til þess.



Léttsteiktar dramadrottningar eru tilfinningaríkar. Þær eru gjarnan leiðtogar í vinahópi sínum, eru vel liðnar af flestum, dáðar af mörgum en einnig öfundaðar af sumum. Hin léttsteikta drottning er hins vegar haldin jafnaðargeði og lætur hólið ekki stíga sér til höfuðs eða öfundsýki koma sér úr jafnvægi.


Hversu mikil dramadrottning ert þú?

laugardagur, desember 1

Heppnasta stelpa í heimi???????



Hér að ofan er mynd af frænku minni í nýlegri ferð sem hún fór í til New York.
Ferð sem hún vann í happadrætti :)
Svo var hún að vinna flatskjá í kvöld!!!!!
Hún er ekki bara gullfalleg, skemmtileg og gáfuð, heldur á hún frábæra fjölskyldu (bestu frænkuna náttlega ;) ) og svo er hún hundheppin!!!!!!!!
Ég verð að segja að ég er frekar öfundsjúk sko!!!!!!!
En ég elska hana útaf lífinu þessa dúllu :þ

þriðjudagur, nóvember 27

Re Virginized

JEYEYEYEYEEYEYEYYYYYYYYYYYYYYY 
Nú eru sirka 3 vikur síðan við misstum netið.  Þetta eru búnir að vera erfiðir tímar ég segi ykkur satt hehe en það er ekkert smá mikil gleði að vera loksins komin aftur í samband við umheiminn :) en ég á líka núna að vera að læra en ég bara get ekki slitið mig frá að skoða allt sem mig er búið að langa að skoða undanfarna daga!!! :) Og loksins erum við að fá þann hraða sem við erum að borga fyrir!! og helling af einhvejrum auka sjónvarpsstöðvum þannig að maður er alveg rúglaður
En mamma og pabbi voru hjá okkur um helgina og það var rosa gaman að hafa þau :)
Gaui greyið varð reyndar fárveikur á laugardeginum en hresstist og við fórum öll saman til brighton á sunnudeginum :)
Við gerðum nú margt skemmtilegt :) versluðum pínu, kíktum upp í primrose hill og svo var náttúrulega farið út að borða heheh :) Þar á meðal með tveimur frændum mínum á föstudagskveldið :) rosalega gaman :)
Gamli fyrir utan British Museum
 
Sjáið hvað loftið er flott!!!
Loksins fengu þeir Yo sushi
Loksins fékk hann Iphone :) nú er bara að aflæsa ;)
Hver er best í Wii sports!!!!!!
Pabbi eignaðist vin 
Jólaskrautið á Regents street er frekar púkalegt þetta árið.  en ég á svo sæta að að það skiptir engu hehehehehehe
Í kulda og roki uppi á Primrose Hill
Við hittum þennan hressa félaga :)
Banksy mynd í Primrose Hill
Ný komin til Brighton
Kúl staður í Brighton ;) fer samt engum frægðarsögum af gæðum hehehe

Knús í krús

Bryggjan í Brighton

Fallegt sólarlag

Við gömlu bryggjuna

Þreytt en sátt eftir frábærann dag :)

Svo er minna en mánuður í heimkomu...sjæse alltof mikið að gera en ég nenni ekki að gera helminginn!!!!!!!

mánudagur, nóvember 12

Back to reality

Fyrsta kvöldið fórum við út að borða á Nandos í Brunswick Centre hafði aldrei farið þangað áður og var bara hin fínasta verlsunarmiðstöð :)
Að sjálfsögðu var stoppað á Starbucks nokkrum sinnum til að safna orku í verlsunarleiðangrum
Guðjón hefur greinilega verið eitthvað seinn á meðlaginu þennan mánuðinn hehehehe
Á Wagamama áður en við fórum á We will rock you
Með miðana á sjóið..jónína hmm klikkaði og gleymdi miðunum heima þannig að rétt fyrir sjóið urðum við að rjúka heim og ná í þá, en sem betur fer búum við ekki langt frá. En það var bara klikkað gaman á sýningunni og við vorum eiginlega bara í transi :)

Röltum hálf þunnar í skítakulda niðri við Thames
Sáum þetta líkar snilldar listaverk í Tate Modern...sprunga í steypu....í mínum huga er þetta meira lélegt steypuverk heldur en einhvern snilld en það var nóg af fólki þarna alveg heillað af þessu, takandi myndir og komandi við þetta eins og þetta væri eitthvað galdra sko!!



Jæja ninna er farin heim :( en við skemmtum okkur alveg frábærlega..skemmtum okkur eiginlega svo vel að við gleymdum að taka myndir ehehe...
Takk æðislega fyrir komuna elskan :) þetta var alveg brilliant!!!!!

Svo í næstu viku kemur settið :) þá get ég loksins sleppt mér í jólafíling :)
Annars bara allt ágætt að frétta.  Á meðan Ninna var hérna fórum við út að borða með tengdapabba og hittum hörð bróður hans gaua ehhe þanng að það var eiginlega ættarmót hjá honum guðjóni um helgina :)
 

þriðjudagur, nóvember 6

Fyrsta hópverkefnið að baki

Gvöð hvað hópaverkefni geta verið erfið.... þurfti að vinna í tveimur hópverkefnum í dag..
Fyrsti hópurinn átti að hittast klukkan 10:00 . Ég mæti fyrst....alveg búin með minn hluta verkefnisins svo tínast nokkrir inn þangað til klukkan er orðin 20 mín yfir þá föttum við að hina ætla sér greinilega ekki að mæta.  Þannig að það vantaði allaveganna helmingin af hópnum.  Við hin ákveðum hvað við ætlum að gera , ég stakk upp á að hinir yrðu bara bjarga sér sjálfir....það fór ekki vel í liðið..þessi er vinur minn og hinn er þetta og eitthvað rúgl..hefði ég vitað að við gætum sleppt því að mæta í morugn og komist upp með það þá hefði ég sko pottþétt gert það...við gerðum ekki neitt nema bíða eftir hinum og ákveða að við ætluðum að halda áfram að vinna í sitthvoru lagi...þessi fyrirlestur skiptir reyndar engu máli...fáum ekki einkunn fyrir hann eða neitt þannig að þetta er ekki alveg hundrað í hættunni en þegar maður krefst þess að við hittumst á ákveðnum tíma þá finnst mér að maður eigi að mæta...já stelpan sem heimtaði þennan fund mætti ekki hehehe lét ekkert vita af sér eða neitt heheeh frekar fyndið.
En svo klukkan 11 rauk ég á bókasafnið til að hitta hinn hópinn..við áttum að vera með fyrirlestur klukkan tólf og ætluðum að setja þetta allt saman og gera almennilegt.. 
Þetta var verkefni sem snerist um að gera auglýsinga herferð fyrir Tate Modern.  Áttum að velja málverk og láta herferðina snúast um það..ég var veik þegar hópurinn minn valdi málverk en það var svosem í lagi afþví þau völdu gott málverk....The Metamorphoses of Narcissus eftir Dali. En málið var að þau vissu ekkert um máverkið..kunnu ekki söguna af Narcissus eða neitt.  Þau völdu hörmulegt slagorð sem tengdist myndinni nákvæmlega ekkert og meikaði ekkert sjens.  Þannig að súperbitch henný mætti á svæðið og stjórnaði öllu eins og herforingi og breytti öllu saman hehehehe þau voru reyndar ánægð með það hehehehe þannig að líderinn var mættur hehehe ég breytti slagorðinu í "Love your self at the Tate Modern" og auglýsingarnar voru með speglu og sjóleiðis :)
Við héldum svo fyrirlesturinn í dag og það gekk mjög vel. :) fáum svo feedback í næstu viku þannig að krossið fingur :)
Ninna kemur á morgun JEY frekar spenntur sko hehehe :)


Þetta er myndin sem við notuðum

laugardagur, nóvember 3

Svaka göngutúr

Tókum þennan líka svakagöngutúr í dag :) liggjum núna frekar þreytt en ánægð eftir röltið :)
Frá klukkan tólf til hálf fjögur. 5.5 kílómetrar :)eheheh 


Hérna sjáið þið göngutúrinnn það er gula línan.  Við fóru frá Embankment og ætluðum í Westminster Abbey..Gaua er búið að langa þangað forever...skrítið hvað anti kristinn maður eins og hann er endalaust spenntur fyrir því að skoða kirkjur ;-) hehehe en röðin í Abbey var svo svakaleg að við ákváðum að sleppa því og fórum í þennan svaka göngutúr í staðnn :)



Frekar þreytt í Embankment túbinu hehe


Mótmælabúðirnar fyrir framan Parlament



Litirnir voru ekkert smá fallegir í Hyde Park 


Tjörnin í St James Park



Sáum þetta svans par þau voru svo ástfangin og alltaf að mynda hjarta :) svo rákumst við á þenna stork ;) kannski hint.....eða ekki ;-)



Ég skemmti mér mjög vel í laufblöðunum :)



Listaverk í Hyde Park í tilefni þess að tatmankút múmían eða hvað hann heitir er að koma af ur til lonon  
 
Flottur píramídi
                                        



Lúkking gúd sko 


Trén eru svo flott á haustin


Gaui var mjög hrifin af húsunum í fansí hverfinu hehehe