fimmtudagur, febrúar 10

Húff púff það er nú langt síðan mar bloggaði
Þá hefur manni verið sagt upp og ráðin aftur hjá þeim á Miðlun..margur veit ey hve gott hefur fyrr en misst hefur....stendur í biblíunni eða öðrum gæða bókmenntum!!! Aníhú
Erum flutt á Grenimelin eða Murderville eins og bróðir minn kallar það. En já margt hefur á daga manns drifið síðan bloggað var síðast....Það sem kannski stendur hæðst er sú tímamóta ákvörðun mín að hætta við Londonferðina með Bleiku, Jónu og Öldu. Eftir að hafa gert þær vitlausar með óákveðni minni ákvað ég að halda mér heima vegna peningaskorts :( en fyrst að mar er nú sosem að flytja þangað á næsta ári hlýtur það að duga manni í bili...Svo var ég ekki "in the loop" hvað varðar aðalskipulagningu ferðarinnar, ekki skrítið miðað við allt vesenið á mér, en eins og þeir sem vita eitthvað um mig verð ég að stjórna ÖLLU þegar kemur að utanlandsleiðangrum. Hef reyndar slappað af smá í þeim málum, Anita ef þú ert að hlægja, ég skipulagði næstum ekkert áður en ég fór til Kanarí......hrmp já næstum
en hvað um það.....
Blogga meira á eftir var að fá gagnríni á útlit síðunnar og ætla að sjá hvað ég get gert til að bæta og betra :)


Komin aftur öll komment hurfu með þessu nýja lúkki þannig að allir sem muna sín komment bring them on ;)

Jæja þá eru þær breytingar sem ég get gert hérna í vennunni búnar... það tekur á herru jú ég þarf að linka meira mar...aaaaaaaarggg

Jæja nú ætti þetta að vera komið í bili
En já halda áfram með updatið. Þeir sem vilja bjalla í mig heima fyrir er símin hjá mér 562 1898 en það sem er ennþá betra, ef einhver vill kíkja á mig þá á ég heima á Grenimel 33 107 Reykjavík ja eða senda mér póst eða eitthvað....
Ég hvet alla til að kíkja á bloggið hennar Tinnu, hún er í heimsreisu og er að upplifa margt skemmtileg. Hún kvaddi með stæl með dúndru partíi þann 29. janúar. Það gerðist margt og mikið skemmtilegt sem ekki verður tíundað hér...
það sem er framundan er idolkveldið í teigabyggðinni og svo verður matur á Grenimelnum með Anitu á laugardaginn. Svo er víst stefnt á að redda vissri vinkonu á broddinn á laugardaginn..... mar er bara orðin pimp

1 ummæli:

anitahaf sagði...

sko... þeir sem búa í Murderville ættu kannski ekki að auglýsa heimilisfang og síma á Alnetinu...hmmm... bara hugmynd... ;-)
sorrí að ég komst ekki í matinn, verðið bara að lofa að bjóða mér einhvern tímann aftur... svona þegar bíllinn er í lagi ;-)