föstudagur, apríl 15

Ég var heima hjá mömmu og pabba í gær að horfa á einhvern lögguþátt. Þar lentu löggurnar í því að þurfa að tilkynna manni að konan hans hafi lent í bílslysi og dáið. Ég veit ekki afhverju en þetta snerti einhvern streng hjá mér. Hvað ef ég fengi svona heimsókn?? Hvort sem það væri gaui , einhver af vinum mínum eða fjölskyldu meðlimum. Ég veit fyrir víst að ég hefði ekki tekið þessu með þeirri reisn og maðurinn í þættinum. En þetta fékk mig til að hugsa.. líf mitt hefur eins og hjá flestum ekki alltaf verið dans á rósum en ég hef alltaf haft gott net af vinum og/eða ættingjum mér til stuðnings. Svo kemur á eftir hugsunin um það hef ég látið meðlimina í mínu öryggisneti vita hvað þeir skipta miklu máli og að ef þeir hverfu yrði stórt gat á netinu. Ég hugsa ekki. Þannig að hér með vil ég þakka öllum kærlega fyrir allt sem þið hafið gert fyrir mig og munið gera fyrir mig :) TAKK TAKK TAKK og aftur TAKK

Jæja nóg um það :) 4 dagar í london og tæpur mánuður í Ipod :)

2 ummæli:

anitahaf sagði...

vá... svo fallegt að hér sit ég í vinnunni og berst við að tárast ekki ;-)

takk fyrir þetta Henný og takk líka og sömuleiðis fyrir að vera til og þekkja mig :-)

Henný sagði...

Vildi bara setja inn þau comment sem ég fékk á emaili
Hæ Henný mín,
Búinn að lesa :) takk fyrir þetta, það er jú ómetanlegt að eiga svona gott net eins og við eigum Henný mín. Dýrmætara en flest annað ekki spurning. Svo er það bara djammið í London, það verður stöööð :)Henning Freyr

takk Henny min - tetta var virkilega fallegt og gaman ad få :)
Hugsa til tin og vona ad tu hafir tad virkilega gott dullan min Jonmundsdottir ;) Linda
hæbs.

Það þarf örugglega sterka persónu til að vera svona opinská á bloggi, þannig að ég segi bara "Gott hjá þér" :-)
kv,
ÞJH

Takk fyrir góðar undirtökur ;)