Jæja þá er maður loksins komin aftur.... húff....
Fyrir þá sem tóku ekki eftir hvarfi mínu úr netheiminum ræði ég við seinna
Alla veganna
Talvan mín er nebblega í gíslingu í Hafnarfirði eða ja kanski ekki svo mikið í gíslingu kannski meira svona þannig að ég gleymdi henni en gísling samt sem áður...
Hef hvort eð er verið svo rosa busy að ég hefði varla haft tíma í að vafrast á netinu..vá hvað maður er merkilegur..
En jæja hér kemur helgin
Eftir vinnu klukkan 3 á föstudaginn fór ég í fjörðinn og tók til fyrir þau gömlu..svo skellti ég mér í pottinn og í bað ( þegar maður hefur bara sturtu þá nýtir maður hvert tækifæri sem gefst!!!!)
Svo grillaði sá gamli og við horfðum á hemma..Síðan fór ég heim og rembdist við að halda mér vakandi yfir tveim dúndur góðum myndum á sitt hvorri stöðinni en um leið og Raggi og Gaui komu heim hélt ég í rúmmið..það er aldrei gláp friður fyrir þeim hvort eð er....
Vaknaði frekar seint á laugardeginum eða um hádegi. Reif mig fram úr og lét kallinn elda morgun mat :) Hann var sonna líka æði..Svo láum við 0g horfðum á Jewel of the Nile sem er framhald af áður nefndri Romancing the Stone...Svo hélt ég til Kefló þar sem Anita beið eftir mér og við héldum aftur í bæjinn til þess að vera viðstaddar í útskrifta veislu.. Það var nú bara fínt og þrátt fyrir verstu hrakspár þá var áfengi á boðstólnum sumum til mikillar gleði ;)
Jæja eftir það var haldið í nýju íbúðina hennar Tinnu sem er bara alveg rétt hjá minni :) en þar átti sko að tæta og trylla fram á kvöld en mín var nú ekki alveg í stuði fékk höfuðverk frekar snemma og svo mætti liðið engin sem ég þekkti. En maður reyndi nú að brosa en þá fékk ég þessa æðislegu og klassísku setningu " Þú heitir ekki Henný er það??" Jú jú segir maður og stíf brosir framan í smettið á gerandanum en þá kemur ALVEG UPPÁHALDS setningin " Heitiru ekki Henríetta??" Ég meina það það er eins og maður heiti Fagott eða eitthvað..
Allaveganna þá reyndi maður bara að ypta öxlum (veit ekki hvort að það eigi að vera Y þarna en fannst það bara svo kúl með P-inu) og glotta. Fyrr um kvöldið hafði Katrín frænka hennar Tinnu kíkt við..maður hefur nú alltaf gaman að tala um við hana enda gerði ég það óspart..enda ein af fáum sem ég þekkti þarna..aníhú..við spjölluðum um Köben hún er nebblega ný flutt þaðan..en því miður fer hún snemma og eiginlega rétt eftir að hún er farin fara nafnapælingarnar að byrja þannig að ég er ekki beint í stuði þegar einhver sem klæjaði mikið í nefinu fer að reyna að rífast við mig um Kaupmannahöfn.. Mér skildist að ég ætti að vera á móti...Eitthvað í sambandi við að mér þykir kaupmannahöfn svo æðisleg afþví hún er rólegri en t.d my beloved london..En honum fannst hann þurfa að verja heiður Kaupmannahafnar búa sem var alveg algjör óþarfi..
Kannski hefur karlræfillinn bara verið að reyna að spjalla en þegar maður gerir það með reiðist tón og illu augnaráði þá held ég að það sé tími til að byrja upp á nýtt..Ég var alla veganna í litlu stuði og ákvað að rölta heim..á leiðinni fékk líka þetta góða boð frá Ninnu um að koma með henni og Katrínu niður í bæ en var nú frekar fúl og pirruð eitthvað þannig að ég neitaði..fór heim og tjillaði lík og gert er í köben ;) það sem eftir var kvöldsins
Sunnudagurinn fór mestur í að flytja hana Anitu sem var að kaupa sér íbúð í 101 algjör pæja að flytja í 101 :þ Hún er reyndar að fara til útlanda í mánuð dóninn!!!!! Svo verður maður aftur að hjálpa henni að flytja á Júlí þegar hún kemur heim...
Jæja en svo var fræðsludagur hjá flugfélaginu í gær..og haldiði að það hafi nú bara ekki verið stór skemmtilegt :) Fékk meira að segja 3 rétta máltíð í Lóninu og alles :) og spuna með Erni Árnasyni..Alveg hreint brilliant dagur bara :)
Jæja best get back to vörk
Það þarf svo sterk bein til að vera ég!!!
þriðjudagur, maí 31
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Hefðir bara átt að trítla með okkur gleðigjöfunum downtown á lau... við vorum svoooo miklar skvízur með sólgleraugun á lofti á miðnætti ;)
...og svona líka snilldar flutningamenn! :-) endalausar þakkir fyrir hjálpina aftur og áfram í tímann og líka í núinu... nú er sjónvarpið farið frá mér líka... svo ég hef ekkert til að yfirgnæfa rappið úr skúrnum... en það er bara eitt kvöld og svo London beibí jehhhh! :-) nú og svo hef ég nottla poddalíus...
Skrifa ummæli