þriðjudagur, júní 28

Þreyttur

Vá hvað maður getur verið þreyttur :-0 geisp geisp..
Helgin leið nú alltof hratt. Kíktum í Hafnarfjörðin á föstudaginn. Þar kíkti mín á línuskauta og var bara helv... góð ef ég segi sjálf frá. Átti nú reyndar soldið bátt með að stoppa mig en það kemur á endanum. Bróðir minn þóttist nú eitthvað vera að kenna mér en hann flaug nú á hausin ekki ég múahahhahahahahaha
Svo enduðum við kvöldið í keilu. Það var ógislega gaman og mín var bara hörku góð!!!!
Vann svo Karen í púl :)
Laugardagurinn fór í leti eina heimsókn, en annars var slappað af. En sunnudaginn var sko tekið á því og mín tók bara bílinn í gegn!!!! Með aðstoð míns dygga aðstoða mans...pabba :)
En svo héldum við í göngu um hafnarfjörðinn með ís í annari. :)
Haldið var í keflavík um kvöldið þar sem við fengum æðislegan mat eins og vanalega og spjölluðum fram eftir kvöldi..
Hins vegar er ég á leið heim.. er gubbandi og alles glæsileg byrjun á vikunni ;)

Anita ég kenni þér á nýju tæknina þegar þú kemur heim..það kostar meira að fá aðstoð frá mér til útlanda ;)

1 ummæli:

anitahaf sagði...

oki... bid tha thangad til eg keim heim... er ad spara.. .eda sko.. theoretically! he hemmm... vona ad ther lidi betur af gubbunni :-)