þriðjudagur, júlí 19

Grúppían strikes again


Jæja ball með Í svörtum fötum á föstudaginn!!! Anita ætlar að halda party og myndaslideshow áður....
Veðrið er loksins orðið gott!!!!!!!!!!! Vúhú og þá er ég náttlega búin að taka að mér aukavaktir niðri í búð en veðrið á að vera gott út vikuna þannig að maður ætti að verða brúnn á mánudaginn..
Helgin var fín. Fór í bíó með Gaui, Anitu og Tinnu á Sin City. Hún var fín. Frekar brútal fyrir minn smekk en ógeðslega flott gerð. Var svo að vinna á laugardaginn. Og kvöldinu var eydd í leti og verð að játa að ég svaf mest allt kvöldið :/
Sunnudagurinn fór í mjög svipað og laugardagskvöldið þar sem ég var ein heima en kvöldið fór sko í hann Jack minn Bauer sem kom sá og sigraði...
Svo var maður ekkert smá öflugur í gær og tók klukkutíma "hike" um vesturbæinn sem fól með allars í því að ég fór í krónuna og ætlaði mér að versla og var komin með slatta en hafði þá eins og fífl gleymt veskinu heima og var látin labba the walk of shame og skila öllu sem ég hafði ætlað mér að kaupa.
Við Anita ætluðum svo að vera rosalegar öflugar og neyða Tinnu með okkur á hjólaskauta en henni tókst að snúa á okkur og fékk okkur til að fara á Vegamót þar sem við fengum okkur að borða og svo var klukkan allt í einu orðin 10 og engin tími fyrir línuskauta :( ;)
En já by the way ég tók ekki þessa mynd fann hana á netinu...

2 ummæli:

anitahaf sagði...

úúúú... ég á fullt af myndum af kauða handa þér! ;-)

Berta in Nice sagði...

ALLTAF JAFN GAMAN AD LESA BLOGGID THITT... VONANDI VERDUR MITT SKEMMTILEGT EINN DAGINN...
http://bertainnice.blogspot.com/