Á ekki að vera sumar!!!!! Það koma samt alltaf sólardagar inná milli svona til að plata okkur svo að við höldum að það sé sumar en svo kippa þeir undan manni mottunni og skella á mann ÞOKU.. Ég kenni veðurfræðingunum um þetta!!! já þeir verða bara að taka ábyrðina í sínu starfi.....Ég held ég fari að kasta eggjum í hús einhverja veðurfræðinga í mótmælaskyni¨!!!!!!¨!!¨"#!#"#$"#% Ef einhver vill vera með eða getur sagt mér hvar einhverjir veðurfræðingar eiga heima þá látið mig bara vita!!!
En haldiði að mín hafi ekki fengið afmælisgjafir í gær...jájájájá Anita kom frá útlandinu á mánudaginn og færði mér gjafir frá þeim mæðgum :) Frá Anitu fékk ég geðveika tösku og flotta eyrnalokka :) frá Bertu fékk ég bleika snyrtitösku með snyrtivörum frá Sephora :) Mjög ánægð bara all round. Svo kom anita með tvö tímarit handa mér mmmmmm og tvær bækur sem ég bað hana að kaupa fyrir mig :) Þannig að það verður nóg að gera hjá blönkum næstu daga :) ví ví
Já svo steingleymdi ég AAAAAAAARRRRRggg hvað maður getur verið ruglaður..ég fékk aðra afmælisgjöf um daginn. Hann Valdi gaf mér bók sem er um public relations. Hún er algjört æði..hef verið að blaða í henni svona áður en ég leggst útaf á kveldin og verð að segja að hún er bara hörkufín verð orðin Public relations expert eftir sumarið :) Látið mig endilega vita :)
Svo að ég sjokkeri smá þá bakaði ég í gær...já eða næstum því..ég gerði eplaköku og baka hana núna á eftir...Maður er svo dúlegur ég verð bara þreytt þegar ég hugsa um hvað ég var dúlega í gær..get ekki skrifað meira vegna þreytu....
Það þarf svo sterk bein til að vera ég!!!
fimmtudagur, júlí 7
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
bíddu... á ekkert að minnast á lúxusíbúðina mína sem þú varst að skoða í gær ;-)
má ég semsagt koma við í eplaköku í kveld?... mmmmmmm!
Já þú ert meira en velkomin ef það verður afgangur :)
Skrifa ummæli