mánudagur, júlí 11

Orðin Í SV. FÖT Grúppía bara


Já helgin er liðin og var bara alveg hreint fínt. Átti reyndar mjög Bridget Joneseque föstudagskvöld þar sem ég var stood up með félaga á ball og skilin eftir ein heima með ekkert að borða nema stolið rice cripsies.......þannig að það var ekki merkilegt kvöld...
En laugardagurinn var sko vel nýttur. Vaknaði reyndar ekki alltof snemma en umleið og við vöknuðum héldum við í Keflavíkina og fluttum Antiu úr Keflavíkinni yfir í 101.. Það tók svo sannarlega á og maður var alveg uppgefin þegar við vorum búin í kringum 9. en við fórum sko ekki í háttin heldur skelltum okkur í bað og héldum á Bergþórugötuna og hófum drykkju..Um 2 leytið var haldið á nasa og þar var dansað af sér allar tær. Jónsi kom sá og sigraði. Bjargaði meðal annars lífi okkar. Tók okkur í arma sér og leyddi okkur í örrugt skjól. Já það voru sem sagt slagsmál á dansgólfinu án þess að við tókum eftir því og dönsuðum bara eins og vitleysingar en jónsi tók í mig og stoppaði mig og svo koll af kolli, bókstaflega setti hönd á kollinn á okkur til að stoppa okkur, og lét dyraverðina stöðva slagsmálin...sem sagt algjör hetja :) En er hreint og beint brjálað stuð ball...og að sjálfsögðu reif jónsi af sér bolinn eins og honum er einum lagið :) Þannig að planið er að drífa sig aftur á næsta Men in black ball.......
Myndin hér að ofan er af nokkrum af ball förunum Vigfús Karen og Natan vantar inn á hana..og Gaui og Hörður sem eru á myndinni fóru ekki á ballið.. ef þið viljið sjá fleiri myndir af þessu hreint frábæra kvöldi þá getið þið farið inná bloggið hennar Antiu þar er hægt að klikka á myndina og komast inn í albúmið..... Og svo ætlum við Ninna á lænera í kveld...þannig að ef ég verð ekki á lífi á morgun þá elska ég ykkur öll ;)

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Menn í svörtu klikka nú sjaldnast ;)

Nafnlaus sagði...

æ... þetta var ég, Katrín :)

anitahaf sagði...

ha!... ég missti algjörlega af Jónsa og handayfirlagningunni og slagsmálunum og öllu!
og afhverju heiti ég alltíeinu Antia hjá þér fröken fix? en þar alltílagi.. mér þykir það bara flott... og líka Anína og Níta t.d. ;-) það er ekki bara þú sem átt í nafnaveseni sko.

og má ég bara koma hérna á framfæri ástarþökkum til þín og Gaua fyrir að vera hetjur flutningadagsins mikla!
Takk fyrir mig og þangað til næst... djók! ;-)

Henný sagði...

Bið bara innilegrar afsökunar...en ég verð bara að segja að Antia sé mikið kúlaðra...svona misterius..hefuru pælt í að breyta?? ;)En skal halda mig við Anitu hér eftir ég lofa...og það skal vera feitletrað hvar sem ég get gert það feitletrað!!!!!