laugardagur, desember 31

The ultimate settler of Catan


Jæja jæja Mr Anonymus.......
Eins og margir tóku eftir var hart skotið í komment kerfinu hjá mér í síðustu færslu um hæfileika mína í Catan.....en ég hef nú sannað með einstakri hæfni yfirburði mína yfir MrAno...
ég rústaði honum og samkvæmt veðmáli á hann að taka lagið í karókí þegar við förum til Mallorca núna í Júní....Hopelssly devoted to you hefur verið fleigt í hattinn en hann verður að ráða þessu sjálfur GREYIÐ ;-) múhahahaah
eins og þið heyrið er ég mjög ánægð með minn sigur enda var hann algjört æði hafði yfir höndina allan tíman (hóst hóst) og þau áttu ekki sjens.

Fyrir þá sem vita ekki hvað Catan er er það stór skemmtilegt spil sem hefur haldið familíunni í heljar greipum síðan við urðum okkur útum það í lok nóvember.....
ég hvet alla til að prufa bæði grunnspilið og viðbótina (haldiði ekki að ef ég held áfram að plugga spilið að ég fái það frítt hjá útgefanda??????)))
Annars er ekki mikið að frétta síðan síðast......lofaði Mr Ano... að ég myndi blogga um sigurvegara spilsins í gær og hef gert það
En á maður ekki að líta yfir árið.....Þetta ár hefur ekki verið það besta en ágætt samt sem áður, árið sem er á leiðinni mun líka vera erfitt en við hörkum þetta af okkur með bros á vör :-)
Ég elska ykkur öll takk fyrir allar frábærar stundir sem við höfum átt :-#

4 ummæli:

Berta in Nice sagði...

Gleðilegt nýtt ár elsku Henný mín, ég öfunda þig og þína spilaglöðu fjölskyldu ;) það hlýtur að vera gaman að eiga þessar stundir saman. Mig langar á nýju ári að reyna að finna spil sem fangar huga minn. Viltu segja mér meira um þetta spil "Catan". Snýst þetta um Sögu,ég held fyrir mig þurfi spilið líka að hafa tilgang eins og fræðslu eða þannig.Knús og kossar. Berta

Nafnlaus sagði...

Geisp, Henný mín, GEISP. Einn heppnissigur breytir ekki þeirri staðreynd að þú getur ekkert í Catan :-)

kv,
mr. singstar

Henný sagði...

Við sjáum bara til...ég skora á þig í kvöld þá getum við haft ultimate catan championship!!!!
Múahhahahahahaha

Nafnlaus sagði...

No can do. En ég skal spila við þig á föstudag.