þriðjudagur, febrúar 28

LOKSINS

Hvað haldið þið að við Guðjón höfum verið að gera í gær??? Ha???
Panta okkur miða til London...aðra leið....Jííííííí
Loksins eftir margra ára bið...ég er búin að bíða eftir þessu síðan áður en ég og gaui fórum að rugla reitum okkar :) en núna er það loksins að verða að veruleika eftir frestanir, sparnaðaraðgerðir, smá forskot á sæluna fyrir nokkrum árum og mikið af dagdraumum...
Við fljúgum út mánudaginn 4 september, ætluðum að fljúga 30 ágúst en það munaði svo miklu á fargjaldinu að við flugum frekar 4 sem er mánudagur þannig að skólinn verður pottþétt ekki byrjaður þá :) En svo er það bara að plana heimsóknir :) allir skyldugir í eina heimsókn á ári :)
Jæja farin að láta mig dreyma meira :)

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Testing

Nafnlaus sagði...

Glæsilegt:) ég ætla sko að koma:) kem strax þegar ég á pening:D en til hamingju með þetta krútlin min ekkert sma flott hja ykkur:D Karen

Nafnlaus sagði...

ó my god. en gaman að þú hafir rekist svona á síðuna hjá okkur:):) vona að allt gangi vel hjá ykkur. ég veit ekki hvort að ég hafi skilið það rétt en ég held allavega að þið eruð að fara út í nám:):) bara gaman. en ef þið eigið leið fram hjá Danmörku endilega bjallið í mig og kíkiði við
Kveðja Gúrí

Nafnlaus sagði...

Flott hjá ykkur að láta af þessu verður. Láttu mig vita hvernig gengur með skóla.... kv. anna