þriðjudagur, apríl 25

Er ekki tími til komin...

Já það er kannski alveg tími til komin að skrifa eitthvað afþví það hefur hhhhheeeeellllliiinnnggguuurrr gerst síðan síðast. Aðallega er það það að bróðir minn er að fara að gifta sig :-) Haldiði að það sé!!! LITTLI bróðir minn að fara að gifta sig...En þau eru allaveganna ótrúlega happí og þá getur maður ekki annað en glaðst með þeim :-) Svo fæ ég að vera með í einhverri skipulagningu þannig að ég er í skýjunum :-) En þau eru með heimasíðu (sem undirrituð hjálpaði með ;) ) sem er www.confetti.co.uk/wedding/karenfusi :-) endilega tékk it át :-) Þau ætla að gifta sig í Úthlíð 7 júlí 2007. Eitt svekkelsi við þetta er að ég fæ ekki að vera brúðarmær!!! Algjör hneysa!!! múahahahahah en ég hef fulla trú á Guðný og Lovísu í það hlutverk :-)
Húff páskarnir búnir það var nú átveisla í lagi :) Kóluspáska eggið rann ljúft niður. Við tókum nú ekki pallinn í gegn í Teigabyggðinni en nú er búið að mála allt slottið og setja upp lista og læta þannig að páskarnir fóru nú ekki alveg í þrældóm..náði að helling að liggja og gera ekki neitt :)

Síðustu helgi fórum við hjónaleysin á árshátíð hjá Decode sem var nú bara alveg hreint ágæt. árshátíðin sjálf var nú ekki uppá marga fiska en þegar maður er í góðum félagskap skiptir það svo sem engu máli :-) Við fengum kennslu í smá línudans og dönsuðum svo við Papana fram eftir kveldi :-) Ég var í nýja kjólnum mínum sem ég keypti í Rokk og rósum fyrr um daginn...algjör pæja múahahahah

Skóla málin virðast vera að komast í lag :-) hef sent út staðfest svar og það er komið í skólan :-) Í dag fer ég í bankann til að fá lán fyrir skólagjöldunum áður en þessi blessaða króna fer að lækka eitthvað meira :-(

Aníhú held að þetta sé bara gott í bili
Karaoke lag dagsins er Dancing Queeen með Abba :-)

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Henný mín þú verður bara brúðarmey í brúðakupinu hennar Lovísu;) en þú færð allavega hlutverk þannig þú kemst á listiann yfir þá sem undirbúa brúðkaupið:)en aníweis þetta verður ógislega gaman og flott:D