miðvikudagur, maí 17

Sumarið er tíminn...

Loksins er sumarið komið. Sumarlyktin er komin í loftið og veðrið er gott :-)
Er meira að segja orðin pínu brún eftir að hafa verið í sólbaði síðustu helgar :-)
Haldið þið ekki að hún Karen hafi náð öllum prófunum og útskrifist núna á laugardaginn!!!! Til hamingju með það elsku dúllan mín!!!!
Get ekki neitað því að það votti fyrir smá öfundsýki að minni hálfu en ég ákvað að klára þetta ekki og verð víst að lifa með því :-þ En allt er í gangi varðandi íbúð úti, ný búin að spjalla við hana Dominique vinkonu mína í Warren Court og hún bauð mér íbúð sem mér þótti of stór og of dýr en við höldum bara áfram að vona!!!
Svo eru bara 20 dagar í Mallorca!!!! og á föstudaginn verður haldin grill veisla í byggðinni til að hita upp fyrir ferðina. Svo fengum við þær ágætu fréttir að meinin hans Afa míns hafi minnkað eftir lyfjameðferðina :-) Fyrir þá sem vita það ekki þá er afi minn sterkastur og bestur ;-) og hefur þrælgóðan smekk, sönnun fyrir því að hann er giftur ömmu ;-)en við erum mjög glöð í fjölskyldunni þó að baráttan sé ekki búin unnum við sigur :-)
Gaui hjólaði til Þingvalla á mánudaginn og varð svolítið þreyttur en hjólaði samt heim úr vinnunni daginn eftir :-) Hann er svo dúlegur hann Gaui minn :-)
Svo var hún Ásta amma mín að gefa okkur geðveikt flott húsgöng :-) hún var nebblega að flytja á Hrafnistu og er þræl ánægð það :-) en húsgögnin eru æði frá 1960 vel með farin og geðveikt flott :) jíbbí
Jæja best að halda áfram að þykjast vera að vinna

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

æhh takk kærlega fyrir elsku krútlan mín :* þú ert æði.. þótt þú sért ekki stúdent að þá ert þú að fara gera ótrúlega hluti núna í haust og nýr áfangi að byrja hjá þér, sem er ÆÐI:) þykir ROSALEGA vænt um þig... :*:*:*:*