
Sit hérna í vinnunni á síðasta vinnudeginum mínum :-) Þetta er ekkert smá góð tilfinning. Svo ætla allir í fyrirtækinu að kveðja mig í hádeginu á Ruby Tuesday, nema þær á Akureyri eitthvað rugl í þeim að vilja ekki fljúga til Reykjavíkur bara fyrir hádegismat.....:-þ
Menningarnótt síðustu helgi. Fórum niður í bæ með settinu og Valda og hittum þar Anitu, Steinka og Benna. Vorum mest allan tíman fyrir utan Ölstofuna útaf því það var svo frábært veður :-) Það var mikið hlegið og drukkið :)
Nú styttist í að búslóðin fari frá okkur og dramadrottingin sem ég er, er ég alveg á hundrað í hausnum að skipuleggja og plana en það virðist vera erfitt að koma einhverju í verk það er alltaf eitthvað annað mikilvægara að gera :-Þ
Vonandi náum við að taka okkur saman í andlitinu og klára þetta
2 ummæli:
já ég hugsa það nú sko... á ekki von á að þið missið af london ferðinni ;-)
Já ég sé ekki betur en allt sé að smella saman hjá ykkur, og það er eins gott fyrir þig að hætta ekki að blogga !!!!!!
by the way það var rusa gaman á Menningarnótt :)
Skrifa ummæli