þriðjudagur, október 10

Fyrsta vikan að ljúka

Jæja þá á ég bara eftir að fara í einn tíma og þá er ég búin að mæta einu sinni í alla tímanna mína. Fékk, eins og sést hérna á fyrri færslu, smá sjokk þegar ég fór í Media theory tíma í þar sem einum of miklu var hent að manni í einu. En svo fór ég í verklegan tíma og þar sem ég virtist skilja einna mest :) Í dag var History of Mass Media þar sem við skoðuðum teiknimyndasögur og krufum þær til mergjar. Já það er erfitt að vera ég ;)
En ég er mjög ánægð með alla tímana sem ég hef farið í. Hefði viljað vera í meira verklegu en það kemur...fyrsta árið er víst alltaf mest bóklegt.
Ég þarf að gera verkefni í Digital Media áfanganum þar sem ég þarf að taka myndir og sannfæra kennaran um eitthvað sem ég trúi ekki sjálf. Ruglingslegt ;) ýmindið ykkur að heyra það á ensku hehehehe en þetta er eins og t.d ef ég trúi á guð þá þarf ég að taka myndir og sannfæra hann um að guð sé ekki til, eða ef ég trúi að himinn sé blár þarf ég að sannfæra hann um að himinn sé það ekki. Ef einhver hefur einhverjar hugmyndir um hvað ég get gert í þessu verkefni endilega látið mig vita afþví ég er alveg að snappa á þessu.....hef nokkrar hugmyndir en samt ekki grænan grun :-þ
:)
En hvað haldið þið
Hún amma mín hefur eins og flestir vita staðið í ströngu undanfarið en hefur að sjálfsögðu staðið sig eins og hetja og við vildum verðlauna hana fyrir það en áttum kannski ekki endilega fúlgur til að gera það almennilega. Þannig að við griðum tækifærið þegar það gafst. Bylgjan var að bjóða einni konu í svokallaða saumaklúbbaferð til london þar sem farið verður á Abba og Tom Jones og svona þannig að við sendum öll inn en heyrðum ekkert þaðan þannig að við sendum líka í Ísland í bítið sem var að gefa ferð fyrir konu til Lanzarote í ferð þar sem dekrað verður við konur. Og haldið ekki að amma mín hafi unnið það :) JEY hún og Ósk eru á leið til Lanzarote eftir viku :) Alveg frábært..þetta er ferð sem kostar næstum 80 þúsund :)
Þetta geriðst miðvikudaginn sem við komum aftur út. Svo var hringt í mig á laugardaginn og það var hún lovísa ástin mín að segja mér að amma vann ferðina til London líka!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Tveim dögum eftir að þær stöllur, Amma og Ósk, fara þær beint aftur uppá völl og koma hingað til london :) Þær eiga þetta svo sannarlega skilið þessar elskur. Ósk missti nefnilega mannin sinn í mars. Þannig að ég held að Afi minn og hann Manni hennar Ósk hafi sko gert sitt besta til að þakka þessum sóma konum fyrir sig og allt sem þær gerðu fyrir þá :)
Takk fyrir þetta strákar og skál í San Miguel :) :-# koss koss
Jæja ætli það sé ekki best að skella sér í eldamennskuna :)

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Frábært hvernig gengur í skólanum:) þú ert náttla algjör hetja;) hehe.. en já æðislegt með ömmu þina og ósk, þær eiga eftir að skemmta ser vonandi vel:)
en hafið það gott dúllurnar minar:)

Nafnlaus sagði...

Þú gætir reyna að sannfæra kennarann um að þú sést stolt af áramótaræðunni hans Gauja hérna um árið. :-)

kv,
Þú veist hver ég er.

Nafnlaus sagði...

hæhæ :) ég frétti af fyrri ferðinni í vinnunni um daginn, eað sama dag og amma þín vann ferðina :) úff ég fékk tár í augun af gleði ;) og svo vann hún hina ferðina líka :) ég er pottþétt á að þessi sóma menna hafi haft eitthvað þar í hlut ;) frábært að þær geta farið aðeins út og hreinsað hugan og haft það gott ;) knús frá Íslandi kv.telma frænka ;)

Nafnlaus sagði...

hæhæ :) ég frétti af fyrri ferðinni í vinnunni um daginn, eað sama dag og amma þín vann ferðina :) úff ég fékk tár í augun af gleði ;) og svo vann hún hina ferðina líka :) ég er pottþétt á að þessi sóma menna hafi haft eitthvað þar í hlut ;) frábært að þær geta farið aðeins út og hreinsað hugan og haft það gott ;) knús frá Íslandi kv.telma frænka ;)