Þá er maður komin á "fullt" skrið í skólanum. Er ennþá að finna minn takt varðandi heimanámið. En það kemur allt :) en ég verð að segja að ég hef aldrei fundið fyrir slíkum aga við að mæta í tíma. Ég finn alltaf um leið og ég nenni ekki að mæta..er í einum leiðinlegum tíma.. þá finn ég alltaf fyrir þrýstingi að innan sem rekur mig til að mæta :) ég þurfti því miður að sleppa einum tíma í gær, einn af þeim skemmtilegustu, vegna þess að ég var veik. En reif mig upp í dag og fór í leiðinlega tímann. Gamla ég hefði hugsað mér lýður aðeins betur en ekki nógu vel og sleppt því að mæta en nýja ég reif sig upp og fleygði sér í skólann!! Frekar montin með mér. Ég held að hann afi minn sé að hjálpa mér og rekandi á eftir mér :) og kannski spilar líka inní að ég veit að ég er að borga helling fyrir þetta úr eigin vasa þannig að maður verður að standa sig :)
Gaui er því miður ekki komin með vinnu :( áður en við fórum til íslands átti hann að byrja á kaffihúsi en hann missti þá vinnu því miður á meðan við vorum á íslandi :(
En hann er að fara í eitt viðtal á morgun og annað á föstudaginn þannig að við vonum bara það besta :) En á meðan er hann á fullu að laga íbúðina. Sparsla, mála og hengja upp hillur og myndir :) Við verðum í Luxury flat bráðlega múahahahha
Eins og er, er ég voða löt :þ hef ekki fengið kók eða nammi síðan á sunnudaginn :) rosadúleg :) en við keyptum smá ís fyrir daginn í dag...bara pinku ;)
jæja best að fara að fá sér smá ís :)
PS Ef þetta blogg er eitthvað lausaralegt þá er það þreytan!!!!!!!!!!!
Það þarf svo sterk bein til að vera ég!!!
miðvikudagur, október 18
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
7 ummæli:
Já skvís þú getur verið viss um að hann afi þinn hefði sko ekki sætt við eitthvað slór í náminu.... sérstaklega þar sem þú ert að borga helling fyrir það ;) gott að heyra hvað þú ert dugleg í namminu og náminu hehe gassalega fyndin he.
kv. Mamma
Já, gott ráð er að ef þú ert einhverntíman ekki að nenna einhverju þá segir þú bara við sjálfa þig: Það er komið "JÆJA"
kv,
ÞJH
jæja... ég er stolt af þér! ;-)
heyrðu og ég er með glaðning handa þér!... ég forðaði nokkrum gömlum bókum frá bókabrennu og þar á meðal einni handa þér... gamalli bók um leikara... headshots af leikurum einsog og Audrey hepburn, Marilyn, Paul Newman, Sophia Loren... og smá upplýsingar um feril og bakgrunn... svona skrá eiginlega bara... he he... datt í hug að þú myndir fíla það... næsti sem er á leiðinni til þín getur kannski kippt henni með handa þér eða þú færð hana bara í jólafríinu... :-)
ps. dagur 3 í móðurhlutverki... phew!
jú.. og svo stóra myndabók um New York if you want...
hæ hæ
Aníta ég er að fara til Henny 16.nóv og get tekið bækurnar með ef þið viljið :) Vona bara að þú lesir þetta. S: 866-7060
Kv. Júlía
hæ hæ... já, endilega ef þú hefur pláss... og ef þau vilja bækurnar ;-)
er búin að punkta niður símann þinn, minn er 691 7033
ohhh... hvað ég öfunda ykkur að vera að fara út... þó ég sé nýbúin ;-)
kv.
Frábært ég er búin að tala við Henny, ég hringi í þig á morgun.. fimmtudag 26. kv. Júlía
Skrifa ummæli