miðvikudagur, október 11

Rigning rigning rignin


Nú hef ég upplifað þá mestu rigningu sem ég hef nokkur tíma upplifað heheheh
Þegar ég leit útum gluggan áður en ég lagði af stað útá strædóstöð þannig að ég skellti mér í 66° úlpuna sem mamma gaf mér og henti mér út. En GVÖÐ MENN GÓÐUR. Það tekur 5-10 mínotur að labba niður eftir og þegar ég var komin niður að Center Point var ég svo gegnblaut að ég gat ekki hugsað mér að vera í buxonum í þrjátíma í skólanum þannig að ég hljóp inní Dorothy Perkins og keypti mér næstu buxur sem ég sá (á tilboði ;) ) og henti mér í þær og splæsti í eitt stykki regnhlíf. Ég er ekki að djóka ég var svo blaut að þegar ég gekk inn í búðina var pollur á eftir mér. Buxurnar mínar eru ennþá blautar!!!!! Það rignir heldur ekki bara að ofan hérna heldur neðan líka!!!! Niður föllin eru svo léleg að það eru nokkra sentimetra pollar á götunni og þegar droparnir lenda á þeim skvettist upp þaðan líka. Maður mætti halda að það rigni nógu oft í Englandi að þeir hefðu ágætis holræsakerfi en nei...hehehe
Núna er ég búin að prófa að fara í alla tímanna mína og þeir eru allir skemmtilegir. Sá sem er minnst skemmtilegur er Trends in Contemporary society. Hann er mikið tal og miklar glósur um hluti sem mér þykja kannski ekki alveg æðislega skemmtilegir eins og stéttaskiptingin í bretlandi en maður tekur því slæma með því góða. En í tímanum í dag áttum við að ræða við þá sem sátu við hliðina á okkur og ég lenti á stelpu sem er frá Líbanon og varð að fara í skóla í Bretlandi vegna stríðsins. Þetta var í fyrsta skiptið sem ég hitti einhvern sem er hefur virkilega verið í stríði og upplifað svona allt annað en ég hef nokkurtíma upplifað.
Skólin er mjög blandaður af kynþáttum og hvítir eru í minnihluta. Það var rosalega skrítið í fyrst þegar ég leit í kringum mig og ég var sú "skrítna" miðað við í skóla heima féll maður alveg inn og tók eftir því þegar einhver dekkri mætti á svæðið. Ekki misskilja mig ég er alls ekki með neinn rasisma eða neitt svoleiðis..
Svo vil ég fara að fá hjálp með þetta verkefni þarna..ég er ekki að djóka ég er alveg stumped!!!! :-Þ
Svo vil ég óska henni Lovísu okkar til hamingju með daginn. Lovísa er besta stelpan okkar Gaua og okkur hlakkar ekkert smá til að fá hana í heimsókn næstu páska :)

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ skvís :) takk fyrir kvittið :) váá það myndaðist táraflóð þegar ég las bréfið þitt til Hennings frænda.. afa þíns.. úff En það verður rosa gaman að fylgjast með þér hér á netinu :) Hafið það rosa gott í London ;) bið rosa vel að heilsa :) Knús kv.telma frænka :)