fimmtudagur, desember 13

Jólahreingernignar

Það á sko ekki að leyfa mér að horfa á Oprah eða neinn svona þátt hehe...sit hérna og græt eins og fífl ehheeheheh Er að fylgjast með strák sem er búinn að vera blidnur frá því hann var 3 ára..hann hefur þróað með sér þann hæfileika að hann klikkar með tungunni í góminn og heyrir þegar bergmálar til baka...hann getur gert greinarmun á hvaða hljóð kemur til baka og veit þá hvaða hlutur er til staðar og úr hverju hann er !!! ótrúlegt...þetta er víst svipaður hæfileiki og höfrungar hafa!!
Er að taka mér stutt frí frá jólatiltektinni :) er búin að vera frekar dúleg í dag ef ég segi sjálf frá :) Það er nú ekki hægt að hafa allt í drasli þegar anita kemur á laugardaginn eheheh :)

Eins og flestir vita lenti pabbi minn í frekar leiðinlegri reynslu um daginn þegar tveir menn brutust inn til mömmu og pabba...en sá gamli held his own eins og þeir segja og náði inn nokkrum vel völdum höggum hehe :) Ég er ekkert smá fegin að það er allt í lagi með hann afþví þetta hefði geta farið miklu verr. Núna get ég ekki beðið eftir að fara heim og faðma hann og tryggja að það sé allt í lagi með hann og segja honum hvað ég elska hann mikið!!


Skelli hérna inn nokkrum velvöldum myndum ;)

Bæði ný klippt og flott :)


Grýla og sonur hennar ;)

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Æ stundum er svo gott að gráta dúllan mín. Pabbi þinn er ótrúlegur og hann elskar þig sko líka :) hlökkum rosalega til að fá ykkur heim og knúsa ykkur líka :)
see you soon :)

Nafnlaus sagði...

:) gleymdi að segja hvur ég er heheh kv. Mamma

Nafnlaus sagði...

Heimur versnandi fer má með sanni segja en það er nú gott að heyra að hann sé heill á húfi:)

Vonandi við náum hittast eitthvað að viti ;) ég er alveg laus milli jól og nýárs... Annars hafið það gott skötuhjú