Videoblog1
Video sent by hennyponsa
Ákvaðum að prófa smá video blogg hehe ekkert merkilegt en bara smá prufa..
En eins og þið sjáið þá er Guðjón búinn að fara í klippingu:) Hann er frekar stoltur :) Ég fór reyndar í klippingu hjá sjálfri mér ;) reyndi nú ekki nein stór virki hehe en samt frekar stolt að hafa náð að klippa mig án þess að enda sköllótt eheh
Allt fínt að frétta ég skilaði fyrsta og leiðinlegasta verkefninu í dag :) hef nú 2 vikur til að skila hinum :)
Það er frekar kalt hérna en mér skilst að hér sé hitabylgja miðað við heima:)
Eitt sem mér finnst frekar fyndið hérna er hvað fólk er svona almennt fáfrótt og afþví ég veit svona kannski lítið um margt þá finnst krökkunum í skólanum ég rosalega brilliant og trúa ekki þegar ég á í erfiðleikum með verkefni. Frekar fyndið.....Afþví að ég veit hver metallica er ;) ha vigfús hahahaha einka húmor ;)
Ég mundi ekki segja að hefði heimþrá en eftir að ég kom aftur út sakna ég ykkar allra ennþá meira :) ég veit núna hvað ég hef það gott heima :) I love yall
:)
Jæja best að halda áfram að liggja í leti :)
3 ummæli:
videobloggið alveg að virka fínt. Nú bíð ég spenntur eftir vikulegum fréttavídeobloggþætti ykkar lundúnarbúa. Vona að þið hafið það gott, og Henný mundu að leiðindi eru bara hugarfar ;-)
kveðja, ÞJH sem er að læra alveg stórskemmtilegt og skítlétt verðmat fyrirtækja.
COOL, rosa kruttlegt video blogg, eg mæli með að þú gerir þetta reglulega. en ekki fara selja inn þá það...:)
Gangi þér vel með skemmtileg og leiðinleg verkefni.
það er allt annað að sjá drengin
og kallin er komin í vinnu.
það eru allar kerlingar í Hafnafirði ánægðar með runingin
á drengnum
Ef þetta á að vera vikulegur fréttaþáttur
þá verður gaman að filgjast með.
það má ekki gleima skólanum
kv AA
Skrifa ummæli