sunnudagur, febrúar 4

Fríinu lokið :)





Síðasta kvöldið af fríinu mínu :) Ég hef nú ekki bara legið í leti sko...ég gerði prototype af boðskortum fyrir Karen og Vigfús og fór í neglur með Söru vinkonu minni :) Svo gerði ég stórhreingerningu á mánudaginn :)
Mig hlakkar til að fara í fyrsta tímann minn á morgun sem er Reading Media Text JESS
Svo er ég í áföngum sem heita Media,Culture and society, The UK film industry og Hollywood Mellodrama. hehehe hvíður pinku fyrir en það gerist alltaf í byrjun annar :)
Vorum að koma úr göngutúr og það var alveg SKÍT kalt og það á víst að haldast svona skemmtilegt veður út febrúar JEY hehehe
Við erum aðeins búin að kíkja á útsölurnar hérna en ekkert verið að eyða neitt...keypti mér buxur á 9 pund :) útsölurnar hérna eru alveg ótrúlega góðar :)En ég hef kannski minnst á það hérna einu sinni eða tvisvar hehehehe en bankarnir hérna eru líka með útsölur...eins og áður sagði þá eru bankarnir í raun að gera þér greiða ef þeir láta þig fá bankareikning, en þeir eru með útsölur á lánum og fleira haha frekar fyndið heheeh

Setti inn nokkrar gamlar myndir :) svona er það þegar maður hengur lengi saman hehehe svo er ein aðeins nýrri svona til að sjá muninn hehhehehe

Blogga meira þegar ég er byrjuð í skólanum :)

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

skólinn þinn hljómar svo spennó...
ég fæ líka alltaf svona kvíða ef ég er að fara takast á við eitthvað nýtt... En vonandi önnin þín byrji vel... og hvað á svo ekki að koma með meira video-blogg? haha
later
Dogg