mánudagur, apríl 16

Í sól og sumar yl



Þá er sumarið komið til london...okkur skilst reyndar að þetta sé bara vorið en við erum alveg mjög ánægð með hvernig veðrið er :) 28 stiga hiti og sól :)

Svo fór ég og talaði við námsráðgjafann minn um daginn og spurði um sumarskóla.....hún sagði að það væri ekki sumarskóli og hún vonaði innilega að það yrði aldrei sumarskóli afþví það yrði óþolandi vinnuaðstaða fyrir kennarana og starfsmenn skólans....mér fannst þetta frekar púkalegt svar þar sem flestar aðrar atvinnugreinar starf ALLT árið og margar vinnur eru BARA á sumrin en ég sleppti því að minnast á það vegna þess að ég vil halda kellunni á minni hlið hehehehehe en þannig að minns veðrur bara on the job í sumar...veit ekki alveg hvað ennþá en það hlýtur að reddast :) annars læt ég gaua bara sjá fyrir mér múahahahahah nei nei maður segir bara svona...eða hvað ;-)
Við höfum bara verið að nýta okkur frábæra veðrið hérna að undanförnu tekið langa göngutúra og setið í görðum og gúrað og lesið :) Eins og frábær maður sem ég þekkti sagði allta I LOVE IT :)

1 ummæli:

Unknown sagði...

I would love it too :).
þið eruð ekkert smá dugleg að labba og skoða allt og bara að njóta þess að vera til.
Love you and miss you :)
Mamma