föstudagur, maí 4

Smá öpdeit

Jæja þá er ég búin að skila fyrstu ritgerð annarinar bara 3 eftir :) Í dag var yfir eins og hálfs tíma fyrirlestur úff þetta var gaman en tók samt á...
Er í smá bassli núna...næstu viku hef ég tækifæri til að pitcha hugmynd að sjónvarpsþætti. Og það er ekki minni maður en Simon Cowell sem ég fæ að koma með pitch til. Hann er að leita að nýjum sjónvarpsþætti til að framleiða fyrir SonyBMG og vantar nýjar hugmyndir...og minns er GJÖRSAMLEGA hugmyndalaus dettur ekki rassgat í bala í hug....þetta verður að vera eitthvað tónlistartengt þar sem SonyBMG er tónlistar kompaní jeddúdda mía!!!
maður getur endalaust vælt yfir að það sé ekkert gott framleitt í sjónvarpi í dag eeeeeeeeeeen þegar til kastanna kemur er maður algjör sökker!!!!!!
Best að leggja höfuðið í bleiti!!!!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Það er ekkert smá, bara í contact við le celebs í skólanum :-) Færðu ekki einhverjar % ef hann ákv. að nota þína hugmynd? :)

Hey... svo eru bara tæpar 3 vikur í heimsóknina. Get ekki beðið.
Éééééég hlakka svo tiiiil.....
Kveðja
JK