laugardagur, júní 16

Its my birthday and I´ll cry if I want to

Þurfti reyndar lítið að gráta á afmælinu mínu en vildi bara láta vita að ég mætti það sko!!!
Ég vil byrja á að þakka fyrir allar afmæliskveðjurnar :) Það er ekkert smá gaman að finna hve mörgum þykir vænt um mann :) Takk fyrir og knús á línuna :-*

Aníhú
Við fórum til Frakklands í lok síðustu viku. Skemmtum okkur alveg þræl vel. Fórum í vatnleikjagarð :) Jey það var svaka stuð :) Vil bara þakka tengdó kærlega fyrir skemmtilega helgi :) Svo áttum við líka 8 ára afmæli á þriðjudaginn :) Tengdó bauð okkur út að borða áður en við flugum heim :) Vinur hennar kom og hitti okkur, og gaf okkur meira að segja gjafir :) allaf að græða sko!!!



Fleiri mydnir á webshots

Svo var afmælið mitt í gær :) Ég vann hálfan dag í vinnunni og fór svo bara heim og slappaði af :) Á fimtudagskvöldinu fann ég miða á We will Rock you á 12 pund stykkið þannig að við skelltum okkur á tvö stykki :) Og áður en sýningin byrjaði ætluðum við að borða á Bodeans en það var lokað!!! Þannig að við skelltum okkur bara á Wagamama, þeir bregðast okkur aldrei og þeir gerðu það svo sannarlega ekki í þetta sinn :) Og We will rock you var snilld :) rosalega gaman :) JEY




Í dag er svo rigning og þrumuveður :) hehe
Það gengur mjög vel í vinnunni :) eru virkilega ánægð með mig og vilja að ég vinni fleiri tíma :)
:)
Jæja best að koma sér að því að gera eitthvað að vita (borða nammi)

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hæhæ sæta...
Frábært að það var gaman í Frakklandi og aftur til hamingju með afmælið í gær ;)
Svo líka til hamingju með 8. ára afmælið OMG! þetta líður svo hratt, erum við að verða gamlar eða hvað?
Líka frábært að heyra þér líki vel í vinnunni, anyways áður en þetta verður ritgerð þá bara knús til þín frá mér...
Later sæta

ps. flottur kjóllinn sem þú ert í

Nafnlaus sagði...

til hamingju með afmælið sæta.. :) hlakka til að fá ykkur heim á klakann :) :Þ