fimmtudagur, júlí 26

Allt á floti allstaðar

Rigning pigning sko!!
Ég veit eiginlega ekki hvort ég á að vera fúl yfir rigningunni eða ekki....mér kveið svolíitð fyrir svaka hitanum sem var búist við í Júlí og Ágúst en það virðist ekkert verða af því þannig að þetta er lán í óláni..
Í vinnunni minni í dag var allt á floti. Það lak úr loftinu útum allt..frekar púkalegt þar sem við erum byggingafyrirtæki hehehehehe
Við hjónaleysin tókum okkur frí á morgun og ætlum að taka á móti nýja sjónvarpinu og liggja svo í leti :)
Jæja ég ætla að gera mig tilbúna til að taka á móti petsunni menni :)
Skil við ykkur með smá mynd af okkur þegar við fermdumst og gegnum saman upp að altari (erum við þá ekki tæknilega séð gift???)

3 ummæli:

Unknown sagði...

híhíhí
nú kom pínulítið vel á vondan hehe birtir mynd þar sem þið eruð að staðfesta að þið eruð kristinnar trúar og gangið saman upp að altari í kirkjunni og eruð kannski tæknilega gift í kirkju hehehehe
neh bara að spauga hehe fyndið að sjá ykkur saman þarna :)
kv. gamla.

Nafnlaus sagði...

omg sjá þessa mynd og nei þið eruð ekki tæknilega gift það væri annars tæknileg mistök hehe :)
Fyndin mynd samt kannast alveg við meira en helmingin... ;)

Vona að veðrið fari að batna, hérna er einmitt frekar gott veður en fljótt skipast veður í lofti.

KV Dogg

JK sagði...

Krúttin!
Hafið ekkert breyst, ég sverða sko ;)