sunnudagur, júlí 22

Lookin good :)


Sá gamli er lúkker það segi ég hehehe
En það er kannski tími á almennilegt blogg :)
Við áttum alveg frábæran tíma á Íslandi :) veðrið var frábært og félagskapurinn ekki verri :)
Mér tókst nú ekki að hitta alla sem ég ætlaði mér að hitta en þá er bara að reyna aftur næst :) við tókum þá ákvörðun að vera meiri hlutan uppí bústað afþví veðrið var svo æðislegt :) Brúðkaupið hjá brósa heppnaðist með eindæmum vel og allir fóru heim ánægðir :) Ég og Ninna náðum að taka nokkra góða hittinga og þar stendur hæðst ferðin á Shrek 3 þar sem við hlóum svo hátt að ég held að fólki hafi blöskrað!! Put yo hat back on FOOL ;) múhahahahahahahah
Þessa stundina liggja Henning og Ásgeir vinur hans steinsofandi í sitthvorum sófanum hjá okkur og mér sýnist gaui hrjóta uppi í rúmi heehhehe það er gaman að vera svona skemmtilegur heheheheh en við erum búin að rölta um allan bæ. Við hjónaleysin tókum þá í bakaríið í Foozball niðri í Covent Garden eheheh og þessir dúddar voru að æfa fótbolta og geta svo ekkert í foozball múahahahahhahaha
Í dag var loksins gott veður eftir allar rigningarnar sem hafa verið undan farið....Ég þrufti náttúrulega að lenda í einu af versta úrhellinu þegar ég var á leiðinni í vinnuna á föstudaginn....með ENGA regnhlíf!!!! ég varð að vinna gegnvot þann daginn...heheeh

Svo átti mamma mín afmæli þann 20 þessa mánðar og vil bara óska henni innilega með daginn " Til hamingju með daginn dúlla :)"

Jæja þetta verður bara að duga í bili allar dúddarnir hrjóta þá er mitt tækifæri til að skipta á eitthvað annað en GOLF í sjónvarpinu hehehehe
Ástarkv.

1 ummæli:

Unknown sagði...

Túsen takk dúlla .... gaman að vera orðin 44 :) heheh frábært að fá svona heimsóknir ;) þú hefur greinilega svona róandi áhrif. Já frábært að hafa ykkur hér á klakanum í sól og hita :) love ya
Gamla konan á Ísalandi