sunnudagur, ágúst 5

Heit helgi







Sumarið er komið í Londontown. Það er búið að vera svo heitt og rakt í dag að við nenntum engu...láum með viftuna í andlitu í mest allan dag hehehe vorum reyndar mjög þreytt eftir rosalega virkan gær dag hehe.









Skelltum okkur í Kew Gardens fórum út úr húsi rétt fyrir 12 og vorum ekki komin heim fyrir en níu um kvöldið ehehe Það var rosa gaman í Kew Gardens...þetta er ekki vatnsleikjagarður þó að það hefði alveg verið við hæfi hehe heldur er þetta grasagarður. Við löbbuðum þar um og láum í sólbaði..fórum þaðan um fimmleytið og ætluðum að taka bát meðfram Themes tilbaka...eeeen þegar við komum að bryggjunni um hálf sex erum við ekki með nægan pening til að taka bátinn og þeir tóku ekki kort!!!! þannig að við héldum áfram að rötla með fram ánni í þeirri trú að við myndum enda við túbstöðina..en ónei við vorum orðin vilt...við héldum áfram af því að við sáum brú þar sem lestarnar voru að fara yfir og fundum stíg með fram því sem við héldum að væru teinar...komumst á endanum aftur í siðmenningu en vissum EKKERT hvar við vorum..ég vildi fara í eina átt en gaui í hina hehehe eins manneskja sem veit að hún hefur rétt fyrir sér leyfði ég gaua að ráða og við enduðum í einhverri verlsunarmiðstöð þar sem ég spurði til vegar. Sem betur fer vorum við ekki langt frá lestarstöðinni og höfðum tæknilega séð bæði haft rangt fyrir okkur hehe en ég var nær heheheheh ;) Við fundum loksins lestarstöðina og vissum að við þurftum að fylla á Oysterkortin okkar. Þess vegna gátum við ekki bara hoppað uppí næsta strædó..við vorum ekki með innistæður inná ferðakortunum okkar og þeir eru flestir hættir að leyfa manni að borga um borð heeheh alla veganna þá komum við að lestarstöðinni og hvað haldiði!!! áfyllingarvélin er biluð!!! við ákváðum þá bara að ANSKT... hafi það kaupum þá bara nýja dýra miða!! erum að leita í töskunni okkar að veskinu þegar mér er réttur lestarmiði, ég lít up og þá sagði maðurinn við mig að hann væri ennþá í gildi og ég mætti eiga hann...þetta var dagspassi í lestarnar og dugði í öll svæði..ég brosti mínu breiðasta og þakkaði fyrir :) trúði ekki hvað við höfðum verið heppin en þá kemur kona mannsins og spyr hvort mig vanti annan miða og bendir til gaua..ég trúði ekki eigin eyrum og sagði vandræðalega jú reyndar heheh :) það eina sem við gátum gert var að þakka fyrir okkur og brosa :) ekkert smá æðislegt :) Og eftir smá rugling ;) komumst við á réttan lestar pall og í rétta lest :) Gaua langaði endilega að fara út einhverstaðar og fá okkur að borða, ég var nú ekki alveg jafn hrifin af því en lét mig hafa það :) Gaui vildi fara á mexíkanskan veitingastað sem við höfðum séð auglýstan síðustu helgi. Gaui mundi svo ekkert hvar hann var hehehe ekki vinsælt hjá þreyttri og heitri kærustu hehehe en ég mundi hvar hann var og eftir að hafa pint hann í smá tíma og leyft honum að labba um og leita rölti ég með hann beint á staðinn ehheeh ég veit að ég var ekki alveg að gera það besta en eheheh ég var þreytt pirruð og heitt hehehe en kíktum á Wahaca og það var ágætt..þeir stæra sig á því að elda mexíkanskan mat eins og hann er gerður í mexico. Sem þýðir mikill rauðlaukur sem er kannski ekki alveg það besta fyrir mig en maturinn var fínn..ekkert sem við förum aftur endilega nema við séum með einhverjum sem vill prófa eitthvað nýtt..heheeh höldum okkur við túrista útgáfuna af mexíkó;) heheeh
Set myndir hérna af rölti um daginn, Kew Gardens og þegar Gaui fékk nýja sjónvarpið ;)




Ástarkveðja

3 ummæli:

Unknown sagði...

Hey hó :) glæsilegt sjónvarp :):)
Þið megið senda svolítið af þessum hita á Frón ef þið eruð eitthvað þreytt á þessu ;)
Love ya
kv. Mamma

Nafnlaus sagði...

Ohhh mig langar í smá hita og liggja í sólbaði :) en það er gott að það er loksins hætt að rigna hjá ykkur og sólin farinn að láta sjá sig :þ
en Geggjað sjónvarp ;)-til hamingju með það, sést sælusvipurinn á Gaua hehe ...
en kveðja frá Íslandinu
Karen

Nafnlaus sagði...

Vá ekkert smá "ferðarlag" sem þið hafið lent í, maður þarf ekki að leita langt til þess að lenda í smá ævintýri hehehe :D

Frábært að veðrið sé að skána og sólin sé að láta sjá sig. Fínar myndir af ykkur... ;)

kv Dögg