Eins og í öllum góðum hryllingsmyndum lifnar óþokkinn við í eitt loka sinn til að taka mann bakaríið. Síðustu daga hefur talvan mína..já NÝJA talvan mín verið með bögg, þangað til að ekki var hægt að nota hana lengur. Þannig að ég dró Gaua með mér niður í John Lewis til að skila tölvunni og fá nýja..en þegar ég kem að costumer service borðinu sé ég strax að manneskjan sem er að fara að aðstoða mig er ekki rétta mannaskjan í það..Kínverskur maður um fertugt sem er innilega ekki að nenna að vera þarna..ég sest niður og segi honum hvað er að..hann segir ekki orð lyftir upp símtólinu, bíður í smá stund, réttir mér símtólið og segir svo "Talk". Ég varð frekar hvumsa og tók tólið og sagði Halló. " Dis ís Hp kostmr servs" ok ég var sem sagt á línunni við þjónustulínu HP í indlandi. ég út skýri hvað er að. Meðal því sem var að var að það kom villa sem hét mlmddklk ég sagði henni það..vinkonan endur tekur mopklmd. NEI mlm vinkonan mrp NEI hvenær sagði ég P. Á endanum fékk ég samband við technical support. Þar tekur við maður sem skilur minna í ensku en sú fyrri og talar alveg hræðilega ensku..svo hræðilega að ég skil ekki hvað hann er að segja á tímum. Við lendum í svipuðum stafsetninga vandræðum í sambandi við villuna. Hvað um það þá lætur hann mig restarta tölvunni 3 bara svona just in case. Og þegar það virkar ekki lætur hann mig restora tölvunni...þetta geri ég allt við þjónstuborðið í John Lewis. Kínverski gaurinn löngu horfinn og finnst hvergi. Svo þegar ég þarf að láta hann stinga tölvunni í samband er hann ekki sjáanlegur og yfirmaður hans finnur hann hvergi. Í staðinn fæ ég rosalega almennilegan breta til að aðstoða mig við það sem ég þurfti sem bendir mér á að aðgerðinn sem vinur minn hjá HP vill að ég geri taki yfir 30 mínotur...ég bendi manninum í símanum á það. Hann segir já ég hringi í þig eftir 45 mín...blíb vinurinn farin af línunni..ég eins og fífl þarna með tölvuna mína í miðri verslunarmiðstöð og veit ekkert hvert ég á að snúa mér..röð af pirruðu fólki fyrir aftan mig og ég náttúrulega sjálf orðin frekar þreytt og pirruð..þannig að ég spurði mannin hvort ég mætti bara ekki skilja tölvuna eftir og fara og skoða í hálfttíma..jújú ekkert mál. Ég fer og skoða skó og eitthvað..fer svo upp aftur. og tek tölvuna mína, þarf að setja hana upp aftur sem tekur alveg sinn tíma..en nei nei hún virkar ekki, ég býð og býð og býð þangað til að dúddinn sem var að aðstoða mig fyrst mætir á svæðið og ég dreg hann að tölvunni minni og segi við hann þetta virkar ekki ég vil nýja tölvu. já já segir hann, ertu með allt með þér sem fylgdi tölvunni, já segi ég, eða nei ég gleymdi bæklingunum sem fylgdu með..já þá getum við ekki látið þig fá aðra tölvu. Ha afhverju ekki þetta eru bæklingar?? eigið að geta útvegað ykkur þá frekar auðveldlega. Nei nei þetta eru reglur..ég er orðin frekar reið á svipinn. Þá fær vinurinn brain wave og stingur uppá því að hann taki bara bæklingana úr nýju tölvunni. ég segi þetta snýst þá bara um að ég fái ekki ókeypis bæklinga!!! hann hlustar ekki á mig segist verða ná í tölvuna niður, ég segist vera fyllilega fær um að ná í tölvuna sjálf nei nei þetta eru reglur..heyrðu góði minn ég er búin að hanga hérna í meira en þrjá tíma JÁ ÞIÐ HEYRÐUÐ RÉTT ÞRJÁ EFFIN BLOOMIN BlOODY TÍMA, hann hlustar ekki á mig og fer niður..af fimmtu hæð niður á fyrstu hæð það tók alveg hálftíma , kom upp reif upp kassann tók bæklingana út og ég fékk tölvuna. þetta tók alveg frá 12 til 4!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Og ef þessi nýja talva er gölluð líka þá er það bara þannig, þá verð ég að lifa við það ehehehhehehe
Ég er búin í starfsreynslunni hjá Big Dipper :) rosalega ánægð,mun reyndar vera þar eitthvað áfram með skólanum og Robin Ellis. Þannig að það verður nóg að gera í vetur :) er reyndar pinku stressuð yfir nýja náminu mínu en vonandi er ég á réttri braut hehe :)
Var að fíflast aðeins með nýja webcamið hehehehe
2 ummæli:
Það var nú bara eitt sem mér datt í hug þegar ég las þetta hjá þér og það var "The computer says nooooo...."
Ha ha ha ha....
En ég vona nú að nýji gripurinn virki vel og almennilega.
Kv. Katrín
úfff og ég hélt að það væri vesen að fá sínu framgengt hérna heima.... :S Vonandi virkar hún vel ;)
Skrifa ummæli