Jæja gott fólk...ef einhver vill halda því fram að ég sé heppin í tölvumálum þá er henni/honum velkomið að stíga fram..en þar sem sá aðili hefði hræðilega rangt fyrir sér þá ætla ég að skrifa síðasta kafla sögunar.
Daginn eftir að ég fékk nýju tölvuna...tölvu númer þrjú sem sagt..fattaði ég að ásam bæklingunum þá tók gaurinn líka fjarstýringuna sem átti að fylgja tölvunni. Ég drössla mér niður eftir á frídeginum mínum og bíð þarna í klukkutíma meðan leitað er að blessaðri stýringunni. Hún finnst ekki þannig að þeir segjast vilja hringja í mig og ég geti svo komið og náð í hana. Nei segi ég geti þið bara ekki sent mér hana...nennti sko ekki að drössla mér þangað niðureftir aftur. Svo fæ ég símtal daginn eftir...jújú þeir fundu stýrikvikyndið en vildu ekki senda mér hana afþví hún væri svo lítil og gæti týnst í pósti. Ég sagði allt í lagi ég kem og næ í hana. Afþví að ég þurfti hvort eð er að SKILA nýju tölvunni..já vinir og kunningjar sú talva var líka GÖLLUÐ ég sel það ekki dýrara en ég keypti það....byrjaði bara með að hún urraði eins og sláttuvél þegar ég setti í hana disk. Það var svo sem alveg nóg fyrir mig til að skila henni..varð bara að finna tíma..en svo daginn áður en ég ætla að skila henni er ég að reyna að kveikja á henni en þá fæ ég þau skilaboð að það hafi komið upp galli í Windows og hún þurfi að restora sér og EF ég get kveikt á tölvunni eftir það þá hefur þessi galli lagað sig..ýmindið ykkur ef ég hefði verið að gera ritgerð kvöldið áður og ætlað svo að halda áfram með hana.....Jasús minn legg ekki meira á ykkur...Svo fór ég allaveganna í morgun með tölvuna...lendi á sama kínverjanum..en núna ætlaði ég ekki að lýða neitt helv...crap. Ég sagði að ég ætlaði að skila tölvunni og ekki fá aðra eins í staðinn. Ég sé búin að velja mér aðra tölvu sem er dýrari og vilji afslátt á henni. Og hana nú..hann var nú ekki alskostar sáttur við þessa frekju í mér og sagði að það eina sem þeir gætu gert væri að endurgreiða mér...ég benti honum á að ég væri virkilega óánægður viðskiptavinur og ef þeir væru sáttir við að ég færi frá þeim reið og bitur væri það í lagi mín vegna..ég benti honum líka á að ég hefði þurft að skila tveimur öðrum tölvum áður og síðast þegar hann afgreiddi mig þá lét hann mig sitja og vesenast í 4 tíma..væri þetta saga sem hann vildi að ég færi með til næsta bæjar..hehehe þá hverfur hann eitthvað á bakvið í smá tíma. Kemur svo aftur og segir að þeir vilji endurgreiða mér og gefa mér 50 pund. "for your trouble" ég hefði ábyggilega getað tuðað upp meira en ég var bara uppgefin, upptrekt og vonsvikin, þannig að ég þáði það og sagðist vona að þurfa aldrei að tala við þessa deild aftur ehehe.
Fór svo og fjárfesti í nýrri tölvu...gettiði hvernig :)??????
Segi frá um leið og allaveganna tveir eru búnir að getta???
Nei kannski ekki...þá gæti ég þurft að bíða slatta lengi þangað til heilir tveir séu búnir að skoða þetta múahhahaha
Ég keypti mér Macbook :) eheheh Ég og Guðjón ákváðum það í sameiningu. Til að vitna í guðjón "Kannski er bara komin tími á að þú reynir Makka..miðað við hvernig þér kemur saman við PC" hehehe þannig að ég tók stökkið eheheh hljómar dramatískt en það er frekar stór ákvörðun að skipta alveg um stýri kerfi ehhehehe En eins og er er ég mjög sátt :) Talvan er ógislega flott og VIRKAR ýmindið ykkur það..ég keypti tölvu og hún virkaði :)
Það er það eina sem ég bið um :)
Hérna að neðan eru myndir frá því að við vorum að leika okkur með webcamið á tölvunni og hreinlega öskruðum úr hlátri heeheheheh













6 ummæli:
hrikalega fyndnar myndir.... maður þakkar fyrir að þið eruð eins og þið eruð heheheheh
Vonandi reynist makkinn vel :)
love ya
kv. Mamma
Makka??????? Hvaða bölv... helv... fuc... skít.... andsk... rugl er þetta. Nú er ég ekki sáttur með hana frænku mína. Allavega ekki tölvuwannabeeið hennar. Sárabótin er að í dag er hægt að keyra Windows á makka þannig að ég sleppi því að taka næstu flugvél til að koma þér aftur á rétt tölvutrack.
HÆ
Mikið rosalega eruð þið flott og sæt, já það er rétt þessi tölva er bara að virka þið eruð svo rosalega kjút og sæt, spurning um að ég fái mér eina svona líka ef að maður verður svona sætur og flottur. En eins og ég er alltaf að segja þá er London bara þið og ekki vantar að þið verðið bara sætari og sætari með tímanum eins og sjá má á myndunum. Ég sit hér við flotta eldhúsborð mömmu þinnar og pabba og mamma þín er orðin mega flott brúnetta og pabbi þinn flottur gráetta... Vorum að borða góðan mat og gott rauðvín erum reyndar bara búnar að smakka tvær, erum rétt að byrja á smökkun....eins og þú veist þá getum við verið öflug í því.. en þetta er annað kommentið sem ég set inn í kvöld og nú áttaði ég mig á því (eða öllu heldur mamma þín) ég gleymi alltaf að setja stafina inn þannig að það byrtist aldrei... en nú kann ég þetta
Sorry ég gleymdi að segja að þetta hafi verið ég
Ása Karín Hólm, kveðja frá familien Erluási 5
Vá þið hafið fríkkað elskurnar :) stundum svoldið ennisstór stundum og frekar hökulítil á öðrum ...
innri fegurðin telur þó 100-falt hér eins og annar staðar, enda nóg af henni hjá ykkur :)
love you,
Stóri frændi
Þið eruð alveg æði :)
JK
Skrifa ummæli