föstudagur, nóvember 2

Hópavinna smópavinna

Er á kafi í hópavinnu í skólanum....ekki uppáhaldið mitt en þetta er mun skárra heldur en þetta var í fyrra...fæ bara hroll við tilhugsunina...brrrrr  
En í einu verkefninu erum við að gera promotion á Tupac (rappararæfill) pakka sem kom út í fyrra.  Í fyrsta lagi skiptir þessi kynning okkar engu fyrir einkunina og í öðru lagi á þetta bara að vera 10 mínotur.  Við erum mjög stór hópur og haldiði að við séum ekki með aðdáanda í hópnum..gaurinn er að gera mig VITLAUSA.  Hann neitar að þrengja hópinn sem við erum að markaðsetja til afþví 60 fólk er alveg að hlusta á Tupac...já ég þekki alveg rosalega marga 60 ára sem hlusta á GANGSTER RAP...en við neituðum að hlusta á hann og settum markaðshópinn 15 til 30 ára karlmenn...þá byrjaði hann að þvæla um að Tupac hafi ekki verið rappari heldur ljóðskáld og eitthvað..við erum að tala um að þetta er hvítur strákur sem gengur um í bláum addidas jógging galla með hárið í svona spikes og talar eins og hálfviti.  aaarg ehehehe en hann skrópar mikið þannig að ég vona að hann sleppi því að mæta það sem eftir er.

ANíhú í gær fór ég og hitti stelpu sem ég þekkti fyrir mörgum árum :) hún býr í brighton en er í sama skóla og ég...já hún þarf að taka lest í tvo og hálfan tíma til að fara í skólann!!! jasús minn ..hehe en það var rosa fínt :) spjölluðum langt fram eftir :) 

Svo stefnum við á rosa aktív helgi :) labbi túrar og safn ferðir :)
Svo er minna en vika í að ninna mæti á svæðið ÚJE

Er búin að vera að reyna að setja inn mynd en það er eitthvað í rúgli..geri það bara seinna :)

Engin ummæli: