þriðjudagur, janúar 22

Tími á fréttir

Kannski að það sé tími á fréttir heehe
Pabbi hans Gaua og konan hans eru ný farin. Það var svaka gaman hjá okkur :) Slatti verslað, mikið borðað, hellingur skoðaður og rosalega mikið hlegið :) Og ennþá meira labbað hehehe :)

Fyrsti pokinn komin í hendurnar. Óli var svakalega duglegur að halda á pokum fyrir Dóru sína og á laugardeginum fórum við í stelpurnar í verslunarleiðangur og köstuðum af okkur pokum til feðgana á pöbb og héldum svo áfram :)




Fórum út að borða á frábærum stöðum..og að sjálfsögðu fórum við á Da Paolo



Tókum marga göngutúra og röltum fæturnar uppað hnjám




Við kíktum í Madame Tussauds




Fórum á Beowulf í þrívíddar bíó á mánudaginn. Ég var nú ekkert sérstaklega hrifin af myndinni. Í fyrsta lagi var þetta í fyrsta skipti í mörg ár síðan ég þurfti að halda fyrir eyrun og loka augunum yfir bíó mynd og í öðru lagi gerist sagan á hálendi danmerkur...sem í raun segir allt sem segja þarf um gæði myndarinnar.


Já og svo erum við búin að panta ferð til NEW YORK JEYJEYJEYJEY Hlökkum alveg klikkað til :) Við förum í mars sem virðist ætla að vera brjál mánuður hjá okkur heehe allar helgar bókaðar bara hehehe kannski einn og einn virkur dagur laus ehheehhehe

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Æ hvað ég öfunda þig að vera þarna í útlandinu. Ekkert smá gaman!!!!
Þið eruð heppin að vera fá svona mikla fjölskylduheimsóknir.

Ohh hvað það verður gaman að fara til NY núna í mars þá verð ég græn af öfund. En já ég sætti mig við gmla góða ísland ;)