þriðjudagur, júlí 29

ætli það sé ekki komin tími á færslu.....

Ég hef bara verið svo þreytt eitthvað og andlaus eftir vinnu síðustu vikurnar að ég hef bara ekki nennt að blogga

Er að vinna hjá Isis productions og er að fíla mig mjög vel :) Er reyndar búin að vera voða vinsæl undan farið og hefur verið boðið tvær aðrar vinnur :) ætlaði að taka aðra þar sem Isis lokar í ágúst..en núna í vikunni vildi Isis endilega fá mig til að vera í ágúst líka...þeir sem sagt hættu við að loka...og buðu mér mjög góð laun. ég var í soldilli krísu afþví ég var mjög spennt fyrir því að vinna fyrir hitt fyrirtæki afþví það er akkúrat fyrirtæki sem ég myndi vilja vinna fyrir í framtíðinni en á endanum sigraði Isis afþví ég hef haft litlar tekjur í sumar og okkur veitir ekki af auka pening.
Mig svíður alveg í hjartað við tilhugsunina um að geta ekki unnið á hinum staðnum en vona bara að geta unnið fyrir þau í framtíðinni.

Annars hafa hlutirnir gengið vel hjá okkur :) Gaui fékk nýju tölvuna sína og ég er því orðin úrelt og gengsæ ehhehehehe en þetta er nú einu sinni kúl talva heheeheh ;) og veðrið er rosa gott ..um daginn var 30 stiga hiti og glampandi sól...plús frekar mikill raki. Og haldiði ekki að rafmagnið hafi farið af !! skrifstofan var rafmagnslaus í hálf tíma. Það var svo heitt og óþægilegt að maður var bara eftir sig allan daginn heeheh


Á leiðinni á Mama Mia bíómyndina

Gaui kom mér á óvart og bauð mér á óperu :)

Hann er svo myndarlegur :)

Gaui pottþétt að rúgla eitthvað í mér

Hann er svo myndarlegur drengurinn :)

Var að prófa sjálfstillirinn á símamyndavélinni

Ég var rosa góð í keilu




Ég á rölti

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hey æðislegar myndir af ykkur ... ekkert smá myndarleg bæði :)
búin að bíða eftir færslu frá þér :)
love you very very much
Mamma

Nafnlaus sagði...

Flottar myndir, flott fólk. Gaman að heyra að þér gangi vel í vinnunni Henný. Ætla af augljósri ástæðu ekkert að tjá mig um tölvuna hans Gauja :-)

kv,
Valdi