miðvikudagur, september 20

Bréf til afa














Ég fékk slæmar fréttir í morgun. Mamma og pabbi eru hætt við ferðina hingað í bili vegna þess að afi er orðin mjög veikur og er búist við hinu versta næstu daga.
Þeir sem ekki þekkja afa minn vil ég hér segja nokkur orð um hann:
Hann er duglegasti maður sem ég hef nokkru sinni kynnst og séð í action.
Hann er líka þrjóskasti maður sem ég hef þrjóskast á móti :)
Hann er alltaf tilbúin til að gera allt fyrir mann sama hvað mann vantar þá reynir hann alltaf að finna ráð til að bjarga því.
Þegar hann vissi afþví að ég var á leiðinni í heiminn tók hann upp helling af barnatíma á videospólu þegar video voru ekki algeng á íslandi
Hann fór alltaf með okkur í bíltúr útá höfn og keypti ís :)
Hann hefur mjög smitandi hlátur og hefur rosalega gaman afþví að hlægja
Landakort eru hans yndi og höfum við átt mjög góðar stundir við að skoða saman kort af London og Mallorka. Ég erfði áhuga minn á kortum frá honum.
Hann er algjört hitadýr og segir alltaf það er ekki hægt að vera of heitt :)
Hann elskar ekta íslenskan mat eins og svið, slátur, siginn fisk og að sjálf sögðu hákarl og skötu. Og hann er snillingur í að elda siginn fisk og pulsur :)
Ég gæti talið endalaust áfram en augun eru full af tárum og ég ætla að láta þetta duga í bili. Ég vildi bara senda þessi orð útí heimin.
Afi ég elska þig alveg ótrúlega mikið og sakna þín alveg hræðilega og vildi óska að ég gæti verið hjá þér en ég lofa að gera þig stolta í skólanum

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hæ elsku henný mín, já þetta er erfitt að heyra og hvað þá að vera ekki á staðnum en við stöndum saman þegar ég kem út og reynum að styðja öll hvort annað. elsku henný mín ég sendi þér alla orkuna mína og hlakka til að koma til þín og knúsa þig. sjáumst á morgunn dúllan mín.

Nafnlaus sagði...

þú ert einfaldlega falleg í gegn. Við sendum pabba alla okkar orku og skilum ástarkveðju frá þér.
Góða skemmtun með "túristunum þínum" og mundu að við komum seinna. Ástarkveðja Mamma og Pabbi.

Nafnlaus sagði...

úff... það eru nokkur tárin sem myndast bara við að lesa þessi fallegu orð þín um afa þinn... ég þykist nú annars viss um að þið séuð jafnsterk þú og afi þinn og styðjið hvort annað yfir höf og heimsálfur... knossar...

Nafnlaus sagði...

Sæl Henný mín. Bara að láta vita að maður er að lesa bloggið hjá þér og auðvitað vona ég, trúi og treysti að ykkur vegni vel í UK.

kv, Uncle Valdo