fimmtudagur, september 7

Starbucksblog

Jæja þá eiga húsgögnin að koma á morgun :)
Tókum smá túristadag í gær. Fórum á stað um 10 leytið og röltum um borgina til að verða fimm. Byrjuðum daginn á rölti um Soho enduðum svo í Chiquito á Leicster square í hádeginu, Henningsfamilían kannast kannski við hann og ekki af öllu góðu, en þar var sama góða þjónustan eða þannig en alveg geðveikt nachos ;) Kíktum inná National Portrait Gallery sem er sko safn sem er hægt að gleyma sér í. Kíktum svo í heimsókn til dúfnanna á Trafalgar square. Röltuðum svo niður að læk, Thames, og sátum þar í smá stund og horfðum á fólkið. Þaðan röltuðum við meðfram læknum röltum svo upp í Holborn og skoðuðum nokkrar GEÐVEIKT flottar vintage búðir og drössluðum okkur svo þreytt heim um fimm. Gaui sendir ykkur hnitin af þessum göngutúr seinna ;)
Við vorum nú farin að halda að við byggjum ein í blokkini fyrir utan smá borun sem var í gangi um klukkan eitt eina nóttina en þegar ég var að koma heim með þvottinn í dag rakst ég á indæla gamla konu...var næstum búin að ásaka hana um borunina þar sem hún virðist vera eini íbúi blokkarinnar en ákvað að gefa henni sjens og sleppti því ;)
En það er fyndið hvað maður kynnist nýjum hlutum í nýju landi..þegar ég var að labba í þvottahúsið í morgun var maður að labba aðeins fyrir framan mig á svipuðum hraða... ég þurfti að ræskja mig og gerði það ósköp létt...svona hmmm...karl ræfillinn hrekkur þá við og hrökklast útá götu og biður mig afsökunar fyrir að hafa verið fyrir mér..gengur svo á götunni heillengi til að hleypa mér framhjá...ég gat náttúrulega lítið annað gert en að herða hraðann og taka sprettinn svona fyrst karltuskan ætlaði að vera með þessa kurteisi...núna geng ég um skíthrædd við að ræskja mig!!!!!!!!!!
Við skötuhjú (ég og gaui ekki ég og kurteisi maðurinn) sitjum á starbucks og borðum löntsj og skoðum netið hérna er svona hotspot eða hotpoint...eða á íslensu heitur reitur. Eftir smá verður haldið heim og allt tekið í gegn áður en húsgögnin koma á morgun...það gleymdist víst eitthvað að þrífa ofninn og fleira áður en við fluttum inn :)
fórum í bíó um daginn og eins og sannir íslendingar vorum við alveg í sjokki yfir að vera að mæta þarna rétt fimm mínotur fyrir sýningu...til að byrja með erum við ein í salnum.....svo mætir þarna einn karl og næsta hálftíman sitjum við þarna 3. En þessi hálftími var ekki hálftími af myndinni heldur voru þetta auglýsingar...ekki til að sýna hvað er að koma í bíó heldur bara hinar ýmsu auglýsingar fyrir hinar ýmsu vörur...þannig að nú höfum við lært að það á alltaf að mæta hálftíma of seint í bíó!!!
Jæja ætla að skoða aðeins á netinu...Takk fyrir öll kommentin við kunnum svo sannlega að meta þau :)

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

váááá mig langar bara flytja þarna út NÚNA :-) hef aldrei viljað búa úti en allt í einu núna er alveg þörf að flytja út hehehee aldrei að vita nema við gerum það einhvern daginn ;) en vildi bara segja að ég elska ykkur rosalega mikið og sakna ykkkar ekkert SMÁ MIKIÐ :) þið fáið sko ekki frið fyrir mer í commentum;) aníweis hafið það gott elskurnar mínar og sjáumst bráðlega.
kv.Karen Lilja

Nafnlaus sagði...

he he... snilldarlýsing á londonskum byrjunardögum og óþarfa kurteisheitum sem sannir íslendingar þekkja illa :-) ...annars hlakka ég nú bara mest til að leyfa þér að lóðsa mig í fyrirheitnar vintage búðir ;-)

Nafnlaus sagði...

hahahahahaha góð kurteisi sem er okkur að sjálfsögðu ókunn, hlakka rosalega til að sjá ykkur kv. Mamma(á Teigabyggð) :) ;)