mánudagur, nóvember 20

Jelló

Getið þið hvað...eftir að ég skrifaði síðustu færslu og var svo montin með mig og alla vinnuna sem ég lagði í ritgerðina mína!!! ég var að vinna á gaua tölvu afþví mín er dauð, aníhú þá crashaði helv....druslan...ég var næstum farin að væla !! búin að vera að í næstum 10 tíma!!!!!! en við fórum með hana til vina okkar í PC Heaven :) og þeir redduðu þessu fyrir mig :) talvan er ekki ennþá komin úr viðgerð en ég fékk ritgerðina mína og get klárað hana í skólanum á morgun hjúffkett!!!
JEYJEYJEY Tinna eignaðist littlu prinsessuna sína í gær :) samkvæmt áræðanlegum heimildum er hún alveg æðislega krúttleg :) Hlakka ekkert smá til að sjá hana en það verður víst ekki fyrr en næsta sumar :( afþví að tinna og þórður ætla að skella sér með prinsessuna til Flórída um jólin :)
Settið er búið að vera hjá okkur alla helgina og það er búið að vera rosalega gaman hjá okkur :) mikið hlegið, labbað, verslað og borðað!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Þau buðu okkur á Mamma Mia á föstudaginn sem var alveg æði!!!!!!!!!! Okkur fannst alveg æðislega gaman og meira að segja Gaua langar að fara aftur :)
Svo í næstu viku kemur Kata og vinkona hennar :) við erum sko uppbókuð þangað til eftir jól ;)

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ha... var að sjá... 28 dagar þar til þið komið heim! það er ekkert :-)

leiðinlegt að heyra með tölvukrassið... en gaman að heyra með ritgerðarbjörgunina... apple... má ég bara mæla með því samt...

hlakka geðveikt til að sjá ykkur!!!!

Nafnlaus sagði...

ooooog... það er til mynd sem heitir 28 days... mæli ekki með henni...

Nafnlaus sagði...

Hef lent svipuðu ritgerðaveseni eins og þú, nema ég eyddi helmingnum af verkinu, alveg óvart! En djö... var ég svekkt og langaði helst að fara skæla!

Gangi þér svo bara vel í skúlen.
kv.
Katrín