


Alveg að komast í jólaskapið sko!!! Búin að versla eða ákveða flestar jólagjafir :)
og eins og áður sagði þá er ég búin að skila fyrstu verkefnunum mínum....er frekar stressuð :) en vona það besta :)
Við erum búin að vera í rosa skrítnu hérna..rússneski njósnarinn sem var eitrað fyrir hérna í london um daginn var á spítalanum hérna við hliðina og það er búið að vera frekar skemmtilegt að fylgjast með fréttum í beinni og sjá þá líka hérna útum gluggann ehhehe og á tímabili gat maður varla stigið út fyrir hússins dyr án þess að vera festur á filmu ehheeh :)
Gaui er á fullu að læra fyrir TOEFL sem hann fer í á föstudaginn. Þetta er svosem ekkert erfitt en maður þarf að æfa sig!! :)
Vorum í tíma í dag að horfa á Usual Suspects, Pulp Fiction og Being John Malkovich. Já það er sko erfitt að vera ég :) heheheheh
Svo förum við til Frakklands í helgarferð í næstu viku...já ég endurtek það er erfitt að vera ég :)
7 ummæli:
úlala vive le France .... var það ekki einhvernveginn svona?
Flottar myndir :)
Mamma
já, æ hvað ég vorkenni þér! ;-)
æææ átt samúð mína alla;)
Kveðja
Ninna
!Hola! Gaman Gaman myndi gera allt til að fá að ferðast aðeins... France segiru... Bon appétit!!
Greetings from Spain
Dogg
Oh mig langar að koma í jólastuðið í London!!
Hafðu það gott í France ef ég rekst ekki á þig á msn áður en þú ferð:)
Knús
Bryns
JÓLAHVAÐ??????
HennýPenný, vertu dugleg á lokasprettinum í skólanum fyrir Jól. Ég sé engar jólaskvísur á þessum myndum :-(
kv,
Stærri og yngri frændinn úr Ásfjalli.
Vídjó í skólanum og helgarferð til France, það hljómar hreint ekki illa.
JK
Skrifa ummæli