
Guð hvað maður var ungur þarna en mér finnst þetta eiginlega bara hafa verið í fyrra!!!!!
Allt fínt að frétta hjá okkur. Var sett í skyndipróf á fimtudaginn...gekk ekkert alltof vel en mér skilst að mér hafi gengið betur en flestum.....margir skiluðu inn auðu en ég náði að svara fimm spurningum af átta
Við erum búin að kaupa allar jólagjafir JEY vúhú við höfum sjaldan byrjað svona seint að kaupa jólagjafir og þótti okkur þetta frekar stressandi :) Kláðuðum síðustu tvær á Oxford Street í gær og sem betur fer var búið að loka henni fyrir bíla umferð afþví það var troðið á gangstéttunum og fullt af fólki á götunni...mig hryllir við hugsuninni um það hvernig hefði orðið ef strædóarnir hefðu keyrt þarna í gegn líka
Nú ætla ég að hendast út í búð og kaupa jólageisladisk, smákökur og efni í heitt súkkulaði :) það er stórhreingernig á Warren Court í dag og smá kökur og heit súkkl á eftir :)
3 ummæli:
hæ hæ Jólafílingur ;)
Mér var falið að segja þér að amma þín byður rusa vel að heilsa, hún margreyndi að commenta hér en það gekk ekki hjá henni en vildi að þið vissuð að hún var að hugsa til ykkar.
Love and kisses
Mamma
Gvuuð! Þetta er ekkert smá gömul mynd, samt eins og þú segir þá er sko tíminn fljótur að líða. Samt svo gaman að sjá að þú og Gaui séu enn að og greinilega til frambúðar ;) Get líka trúað því að þú hafir verið stressuð í skyndiprófinu, verð nú samt að segja að 5 af 8 er bara mjög gott miða við að skila auðu. Anywho Sæta...
over and out for now...
Jájá, bara heitt súkkulaði og næs og manni ekki einu sinni boðið í heimsókn!!! Ég er ekkert sár, en vil bara láta ykkur vita að ég er búin að láta cancela öllu flugi frá London til Íslands fyrir Jól. Bið að heilsa jólasveininum á oxford street.
kveðja,
Áslandsbúi
Skrifa ummæli