föstudagur, nóvember 10

Mismunun????


Hvað haldið þið?
Gaui fær því miður ekki að byrja á Starbucks fyrr en eftir áramót afþví hann vill frí í kringum jólin, sem er kannski skiljanlegt nema að Gaui átti að vera á kynningu sem byrjaði hálf tvö en þau þurftu að bíða í hálftíma eftir yfirmanninum afþví hann var í moskunni að biðja......svo þegar gaui minnist á að hann vildi nokkra daga í frí kringum jólin var hann látin vita afþví að hann fengi þá ekki að byrja að vinna fyrr en eftir áramót, í kringum jólin fengi hann bara frí 25 des eins og aðrir. Hann bað í raun bara um frí í 3 virka daga afþví hann hefði ekki unnið um helgar og ætlaði bara að vera í viku á íslandi en nei í englandi er bara haldið uppá jólin 25 des og þannig er það. Gaui varð nú frekar reiður og vildi spurja hvort það væri notuð sama stefna í kringum ramadan en sem betur fer róaði hann sig niður afþví hann vill geta unnið þarna eftir áramót. En þetta er frekar fúlt og í raun ólöglegt að ráða fólk og svo hálf partinn segja því upp afþví það vill halda uppá jólin en Gaui er nú að spá í að fara frekar í skóla eftir áramót sem ég er mjög ánægð með :)
Ég vona að hafi ekki móðgað neinn með þessari færslu en eins og flestir skilja kannski þá erum við frekar pisst. :þ
Annars er allt gott að frétta fékk mjög góð viðbrögð frá kennaranum mínum varðandi essay planið mitt í Media Theory :) nú þarf ég bara að klára tvö verkefni og þá er ég búin í bili :)
Svo eru mamma og pabbi að koma í næstu viku JEY

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

VOTT!!!... þið tvö sko... það á náttúrulega ekki af ykkur að ganga ;-) ... ok, ef hann guðjón ætlar að fara í skóla e. áramót þá á hann bara að halda sér saman, ráða sig í vinnu og segja svo upp f. jól! held það sé viku upps.frestur í þónokkurn tíma þarna í þessu skrítna landi... annars kannski best að ath. það samt... og já, um að gera að fara í skóla e. áramót... eeeeeen, eruði búin að ath. hvort það sé hægt?? jú nó.. ucas og allt það vesenisdæmi... úff... ekkert caramel macchiato handa mér, það er nú mesta áhyggjuefnið þrátt fyrir allt! ;-) ...en, baráttukveðjur.. ég vona að það fari að finnast vinna eða skóli eða eitthvað annað fyrir greyins útlendinginn í stórborginni að bralla... annars eru nú alveg að koma jól... geturðu ekki bara látið hann í að prufa hin ýmsustu húsráð? ;)

til hamingju með gott gengi í skólanum

knúsforjús

Nafnlaus sagði...

Hæ æææææææææææææææææ hvað þetta er fúlt við erum rétt hætt að dansa fagnaðardansinn fyrir Gauja, fúlt fyrir hann og ykkur bæði en en nú er bara að halda í góða skapið sem ég veit að þið eigið nóg af og hlakka til þess sem framundan er og jú njóta dagsins í dag og við skulum halda áfram að dansa baráttudans fyrir Gauja í von um að það beri árangur og að hann fái eithvað að gera sem hann er sáttur við ... sem sé ugachaga, úgachaga endalaus dans........kv. Erluás 5.....er líka alveg að koma til London. Henning fyrst og svo .....hlakka til að hitta ykkur en svo sannarlega ekki á Starbucksxqxqxprrrrrrrrru

Nafnlaus sagði...

Flott þetta nýja starbucs logo :-)
Fyrst þeir eru með svona vesen þá held ég bara áfram að versla við Súfistann :-)

Gott hjá þér Henný að taka námið með trompi.

kv,
ÞJH

Nafnlaus sagði...

Skíta fyrirtæki... Ekkert smá lélegt, en er viss um að ef hann væri breti en ekki expat þá hefði hann fengið frí.. líst roooosaaaleega vel á að hann fari í skóla og skilaðu bestu kveðjur frá mér til hans
Good luck to both of YA!!!
Love Dogg