mánudagur, nóvember 6

Remember remember the 5th of November

Í dag er Guy Fawkes dagur, þetta var einusinni svar bretanna við Öskudag en þeir hafa því miður tekið Holloween upp með krafti. Í dag er Guy Fawkes brenndur til varnar öllum framtíðar hryðjuverkamönnum í hinu kónugnlega landi :)
Héðan er allt kalt að frétta hehe skít kalt alveg hreint :)
Fór í British Library á föstudaginn og fannst ég frekar lítil í þessu hrottalega stóra húsi. Þeir eru með yfir 150 milljón titla og mér fannst ég engan veginn vera að finna það sem mig vantaði :-( en ég bjallaði í hana Lovísu mína og hún hressti mig alveg við á nóinu:) gott að eiga góða vini :)
Tíminn lýður sko alltof hratt og meira til jeminn........það er ekki einu sinni tveir mánuðir í að við förum heim um jólin og mér finnst ég rétt nýbyrjuð í skólanum!!! Nú er ég komin með þrjú verkefni sem ég þarf að skila eftir sirka 2 vikur..stefni að því að klára þau í vikunni svo ég verði alveg frí þegar settið kemur í heimsókn...ætti ekki að vera of erfitt ef ég kem mér inní þetta. En svo þarf ég að skila einhverjum ritgerðum í lok janúar..fjórum held ég meira að segja og stefni að því að klára allaveganna tvær í desember áður en ég fer heim..já maður er sko dúlegur :)
Jæja ég ætla að henda mér í háttinn:) mæta snemma í skólann á morgun og byrja á blessaða Essay planinu :)
Já by the way allt jólaskraut komið upp og í búðir hérna NO FAIR!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ánægður með að þú sést að taka námið svona af krafti. Keep up the good work.

kv,
ÞJH

Nafnlaus sagði...

...og hér er líka komið jólaskraut upp og útum allt!...komin með leið á jólunum nú þegar!