Úff púff Er með ritstíflu frá helvíti eins og sumir myndu segja......
Er að rembast við að skrifa ritgerð fyrir Media Theory tímann minn....mér þykir umræðu efnið mjög áhugavert og skemmtilegt. Veit nákvæmlega hvað ég vil að standi í ritgerðinni en ég virðist bara ekki ná að koma því frá mér!!!! AARRRGG svo ákvað ég að sleppa að taka bók á bókasafninu sem hafði verið eins konar hjálpardekk fyrir mig í fyrr verkefninu...hún segir eiginlega það sama og námsbókin mín en ég skildi betur það sem stóð í henni....hélt að ég gæti sleppt henni fyrst ég er nú einu sinni með rétta bók en nei mér finnst ég eins og fiskur á þurru landi...hehehehehehehe ég skil svo sem alveg hvað það er sem ég á að skrifa um en virðist ekki geta útskýrt það með tilvísun í námsbókina afþví mér þykir hún frekar óskiljanleg.... hehehehehehehehehehehehe akkúrat núna langar mig að gera allt nema ritgerðina...þrífa, mála, elda , ræða málin...jú neim it hehehehehehehehe þarf bara að koma mér almennilega í gírinn.
Fór til læknis í gær. Hún heitir Dr Nysenbaum, borið fram Næsenbám. Hún var ágætlega næs...múhahahahahah. Fékk krem, töflur og er á biðlista fyrir tími í the small surgery clinic. Þannig að vonandi fer þetta að skána hjá manni
Gaui er núna á fullu að lesa efnafræði til að hressa uppá kunnáttuna ef hann skildi ákveða að fara í skóla í haust...honum finnst hann ekki alveg nógu vel undirbúinn...en það kemur eiginlega ekki til mála að hann taki það sem kallast foundation degree afþví lín lánar ekki fyrir framfærslu kostnað á því :( þannig að hann þarf að undirbúa sig að mestu sjálfur ræfillinn...hehehehehehe en vonandi getur hann farið á einhver námskeið í vinnunni sem hjálpa honum með þetta :)
Best að fara gera eitthvað...helst læra en maður veit ekki nema ég fari bara að elda eða eitthvað......vinsamlegast sendið alla ritgerða orku sem þið hafið aukalega til...og hún má helst tengjast Ideology, hegemony og structure of feeling...en ég þigg hvað sem ég fæ ;)
Það þarf svo sterk bein til að vera ég!!!
miðvikudagur, janúar 17
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
hvaða hvaða ritstíflu þú sem ert svo gáfuð ;) amk man ég eftir þér þannig... ég ætlaði bara að leggja orð í belg of segja mar á kannski leið um London á næstunni. Já mig langar svo geggjað á tónleika með Beyoncé núna í apríl eða maí man ekki alveg, eða Snoop-Dogg og P.Diddy. Veit algjör r&b píka dauðans.. Allavega væru þið ekki til í kaffi eða bjór eða what ever ef mar myndi kíkja á tónleikana?
Annars hafið það gott people
Love Dogg
Skrifa ummæli