fimmtudagur, janúar 25

Jiiiiiiiibbbbbbbííííííííííííííííí








jæja þá er komið annað video blog í viðbót :) Myndirnar eru af snjónum sem var hérna í nótt hehehe hann var nú farinn þegar ég vaknaði daginn eftir heheeheheh Það er nú allt fínt að frétta hjá okkur :) Ég var nú reyndar frekar langt niðri á mánudaginn en hann Gaui minn hjálpaði mér uppúr því...þannig er að eins og flestir vita er mér mjög ill í fætinum út afsýkingu...en aníhú ég vaknaði hálf aum um morguninn afþví mig dreymdi afa minn og ég vildi ekki að draumurinn endaði :( en þetta var æðislega fallegur draumur og ég er mjög ánægð með hann :) Ég prentaði út tvær ritgerðir og Gaui bauðst til að fara með mér uppeftir að skila þeim....þegar ég var búin að skila þeim sagði Gaui að hann væri svo stoltur af mér að hann vildi að við færum í eina af uppáhalds búðunum okkar á Holloway Road og ég mætti kaupa mér eitthvað :) Það er svona hálftíma gangur þangað og ég hugsaði með mér að ég gæti látið mig hafa það ....var nú einu sinni að fara að versla mér eitthvað. En lappar druslan hélt nú ekki...ég var farin að hoppa á einum fæti þegar við komum að búðinni. Ég var nú ekki í miklu stuði fann mér tvenna skó sem mig langaði í en þeir voru báðir of littlir þannig að ég fór þaðan með sárt ennið..Svo héldum við heim með lestinni sem er frekar leiðinleg ferð afþví við þurfum að skipta á Kings Cross og labba þar helling, mín á einum fæti ;) Svo fórum við beint í búð. Ég tek eina flösku af kók zero úr hilluni en viti menn haldiði að það falli ekki 2 lítra flaska af Canada dry á viðkvæma fótinn mar....þetta var svo vont að ég feldi nokkur tár þarna á ganginum í Tesco...og er ennþá að pæla í að kæra þá heheheheheh þannig að þegar heim kom á mánudaginn var ég frekar miður mín og þegar ég sá að kennarinn minn var ekki búin að svara emaili sem ég sendi honum fyrir viku síðan og merkti Important var ég frekar sár...eeeeeeen maður rífur sig bara upp og hlær að þessu ....ég get svarið það að mér lýður eins og aðalkarakter í Steve Martin bíó mynd ég bíð bara eftir að það springi rör eða þakið fari að leka ( erum ekki á efstu hæð en allt getur gerst í bíó ;) ) En núna er ég í SJÖUNDA himni :) búin með allar ritgerðir og er frekar stolt af þeim...:) Nú er það bara að kvíða fyrir niðurstöðunum :) Og síðustu vikur hef ég mikið notað Anti stress bath soakið sem ég fékk frá Erluásnum í Jólagjöf:) frábært alveg :) og kem til með að nota það þangað til ég fæ niðurstöðurnar
Gaui er núna að deyja úr ánægju í Second Life leiknum sem ég var að skrifa um ...heheeh situr hérna og býr til ótrúlega undarlega karaktera og flissar eins og smá stelpa hehehehhe Í stuttu máli eft þið rekist á rauðhærðan dverg í hlébarða g-streng og zebra hlírabol í Second Life þá heilsið þið bara afþví það ku vera hann Guðjón Ástarkveðja Henný

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hey nennirru að taka þennan happy dans aftur hehehe :) en allavega frábært að þu sert búin með ritgerðirnar, gott að vera búin og slaka á, staðinn fyrir að vera á seinustu stundu :) allavega GO HENNÝ , GO HENNY hihi..

Nafnlaus sagði...

Til hamingju frænka.
Hvaða fótarugl er eiginlega í gangi hjá þér????? Ég hélt að þetta væri bara hælssæri, en greinilega ekki að fylgjast nógu vel með.

Nafnlaus sagði...

Til hamingju að vera búin að skila ritgerðunum... Þú góða kall ;) Við erum soddan dekurdósir en samt svo sjálfstæðar...
Hvaða fótavesen er þetta, vonandi þarf ekki að taka hann af... Láttu þér batna dúllus. Lítur svo vel út... Og sko videoblogg meira.. þetta er bara skemmtilegt...
hasta luego Dogg ;)

Nafnlaus sagði...

hæhæ :) langaði bara að kommenta :) ekkert smá sniðugt þetta video blogg :) Til hamingju með ritgerðirnar og hafið það sem allra best út í London :) kv.telma :)