















Þetta var nú vægast sagt brilliant helgi :) Byrjuðum á Roller Disco-inu á fimtudeginum....það byrjaði nú ekki alveg fullkomið ehhehe vissum ekki alveg hvert við vorum að fara en 118118 björguðu okkur um heimilisfang. Málið er að roller discoið er ekki í beint öruggu hverfi...frekar óöruggu eitt eða tvö gengi á milli vina og sonna aní hú við röltum á rétta götu kíktum fyrst á einn bar og okkur var sagt að það væri 10 mín rölt , bretar segja reyndar alltaf að það séu 10 mínotur í hlutina sama hvað það er hehe, eeen við létum okkur hafa það að rölta fyrst enginn leigubíll stoppaði fyrir okkur....við röltum og förum framhjá bensínstöðinni eins og okkur var sagt....en þegar við tökum begjuna sem við áttum að taka endum við í voða scary og dimmri götu eins og sést á myndunum...allaveganna þá löbbum við niður götuna...sjáum svo í fjarlægð mann í öllu svörtu og með svarta hettu og hann er að gera sig líklegan til að ætla eitthvað að spjalla við okkur...við erum nú ekki alveg á sömu skoðun og vildum forðast hann eftir mesta megni....en það var ekki komist undan og hann gengur að okkur og segir okkur að fara hinu meginn á götuna, við hlýðum eins og hræddar rollur en okkur lýst ekki almennilega á þetta...á endanum komum við að sundi sem er frekar dimmt og það er röð af svokölluðum Hoodies fyrir framan skemmu með nelgt fyrir gluggunum...hoodies eru strákar í gengjum hérna aðalega svartir og eru þekktir fyrir að ganga með byssur....og í röðinni er verið að skanna fyrir byssum með svona málmleitar tækjum sem maður sér í bíómyndonum..við ætlum nú að taka 180 gráðu snúning en Anita heyrir seventís tónlist í fjarska þannig að við ákveðum að fara í röðina....okkur til smá léttis er að það eru nokkrar stelpur í röðinni ... það er leitað í töskunumum okkar og þreifað á okkur öllum er okkur hleypt í röðina að bleikum trukk sem virkar ekki beint traustvekjandi en okkur er hleypt þarna inn á endanum.....og þetta er réttur staður og glimmrandi seventís tónlist fyllir allt :) erum ennþá frekar skelfd en skellum okkur á gólfið og þessir hoodies eða gengis gaurar eru bara alveg brill á skautum...og staðurinn er pakkaður og nokkur hundruð manns þarna inni :) við skemmtum okkur allaveganna rosalega vel :) og Gaui sem vildi sko alls ekki fara skemmti sér mest af öllum :)og vill endilega fara aftur :)
æðislegt kvöld alveg hehehe eeeeeeeeeen ævintýrin voru ekki búin
Kvöldið eftir bauð anita okkur út að borða á frábæran Indverskan stað við Brick lane :)lentum reyndar í smá hremmingum á meðan við vorum að leita af Brick lane....meðal annars viltumst við og það var hent í okkur eggi...en svo eftir matinn ætluðum við að finna einhvern almennilegan skemtistað en vorum ekki alveg að finna það og gengum fram á slagsmál við einn enda götunar og löbbum í hraði í hina áttina en þá eru slagsmál þar líka...og við erum í hóp af fólki sem veit eiginlega ekkert hvert á að snúa sér.....flestir ná að hoppa inn í leigubíl en við bíðum undir einhverju skiggni í grenjandi rigningu...þeir sem þekkja mig vel vita að ég er ekki besta manneskjan í svona aðstæðum...missi hreinlega alla skynsemi og vil bara stinga af eitthvert í burtu....og ég var svo heppin að Gaui og Anita voru svo indæl að láta það eftir mér og við tökum túbið niður í bæ en allir staðir sem við ætlum inná voru annað hvort lokaðir eða neituðu okkur um ingöngu þannig að við héldum heim á leið...en lentum í grenjandi rigningu á leiðinni!!!! Ævintýralegt kvöld í alla staði :)
Á laugardeginum fórum við út að borða í hádeginu með valda á meðan anita fór á Design Museum..síðan reyndum við að fara í rennubrautirnar í Tate Modern een það var full mikil aðsókn í þær fyrir okkar smekk og við drifum okkur heim til að hleypa þunnum Valda í sófann hehehe :)
Um kvöldið fórum við svo öll saman á alveg æðislegan Líbanskan veitingastað :) fengum yfirdrifið nóg að borða og skemmtum okkur æðislega :) Síðan héldum við niður í bæ á stað sem ég heimtaði að fara á en stóð ekki alveg undir væntingum en við skemmtum okkur ágætlega samt sem áður :) Mikið hlegið og drukkið hehe :) síðan tókum við röltið niður að Piccadilly Circus þar sem ég lét frelsa mig af sendiherra Drottins..hehehe MIKIÐ hlegið...enn og aftur var engin staður sem vildi taka við okkur eða við vildum ekki fara inn á...enduðum á Molly Moggs í last call og röltum svo heim...og lendum í grenjandi rigningu!!! Enn og aftur :)
Daginn eftir var mins komin með rosa hálsbólgu og kvef...og undir kvöldið var hitinn kominn uppí 40 og mín ekki alveg með fúlle femm!! Gaui er nú reyndar búinn að vera æði og stjanar við mig eins og hann getur..þangað til hann kom heim úr vinnunni þá vr hann orðin veikur líka...sagði reyndar við hann að hann væri soldið að stela mínu thunder...hann var veikur fyrir jól og ég stjanaði við hann í viku og núna er hann veikur á sama tíma og ég ;) en ég var svo rosalega ánægð með helgina að veikindin geta engan veginn sett skugga á það :) Bara æðislegt að hafa Anitu hjá okkur og alveg frábært að fá að eyða tíma með Valda :) Æ lof jú bóþ :)
Jæja ég ætla að leggja mig og reyna að láta mér batna lotsa lurv :) og muna alltaf fleiri myndir í london myndir til hliðar :)
5 ummæli:
he he he... brilljant frásögn af fáránlega furðulegum uppákomum... en skemmtilegri helgi!... kærar þakkir fyrir mig... alltaf jafngaman að koma í heimsókn á það fyrirtakshótel sem þeir kalla warren court 21... og félagsskapurinn frábær og allt æðislegt... ég kem samt ekki aftur fyrr en ég er búin að læra að teleportast!
;-)
Sáldra yfir þig ánægjudufti!
-Gleðiálfurinn :)
Láttu þér batna!
Vá hljómar skemmtilegt, við verðum að fá að kíkja einhvertíman í heimsókn til ykkar og þið fylgið okkur á Roller Disco. Látið ykkur batna sem fyrst.
Bestu kveðjur frá klakanum,
Dögg, Elli og Ýr
t ekki um aðHvaða rugl er þetta... voruð þið ekki með egg til að kasta á móti í pakkið sem grítti ykkur ?? Aldrei aftur fara eggjalaus á djammið :) Þetta hefur greinilega verið viðburðarík helgi o gnú er verið að borga gjaldið, í þynnku, hálsbólgu, hita og öðru skemasmtilegu. Ég efast ekki um að þið hafið verið blaut í gegn þessa helgi, allavega ef mark er takandi á lýsingunum....
kv. Stóri frændi
Bara til að hafa það á hreinu, þá er ÉG stóri frændi. Veit ekki hvaða wannabe var að skrifa hér á undan mér og kvitta sem stóri frændi en sá hin sami má eiga von á lögsókn. Mig grunar að þetta hafi verið litli bróðir minn sem hefur verið með eitthvað stórmennskukast.
Skrifa ummæli