

Nú er fyrsta vikan í skólanum búin :) ég er mjög ánægð með tímana mína :) í tveimur tímonum mínum neyðist ég til að horfa á bíómyndir aðra hverja viku....ég hef alltaf sagt að það sé farið illa með mig :)
Snjódramað er búið hérna í Englandinu í bili...þetta voru nú meiri lætin..það var meira að segja Snow-watch í fréttunum...svo voru öll herlegheitin sýnd úr þyrlu daginn eftir ...það var hellings seinkun á samgöngum og læti...bretland lifði af tvær heimstyrjaldir en smá slydda setur allt úr skorðum hehehehehe En það er búið að vera skííííííííít kalt hérna....en í dag var hlýtt þannig að við tókum stóran göngutúr, niður á Tate Britain. Við ætluðum Hogarth sýninguna en það kostaði 10 pund á mann þangað inn þannig að við skoðuðum frekar almennu sýninguna þar á meðal sýning á munum sem Brian Haw hefur gert.. Han er maður sem tjaldar fyrir utan Houses of Parlament og mótmælir. Hann er svona mótmælandi Íslands..nema í Bretlandi...þannig að hann er mótmælandi Bretlands :-/ hehe
Hann er rosa sniðugur bæði málverkin hans og orðaleikjum, eitt einfalt og gott er Hear no truth, See no truth, Speak no truth með mynd af Blair eða B-liar eins og Mister Haw kallar hann :) Þegar við vorum búin að skoða allt sem fyrir augubar (ókeypis) tóku við Tate Bátinn að Tate Modern og var ætlunun að fara í rennubrautirnar :) en þær voru full bókaðar þann daginn þannig að við ákváðum að bíða þangað til lovísa kemur og dífa hana með okkur í þær...Stæðsta er alveg HUGES....vona að myndin sýni hvað þetta er innilega stórt og kúl :)
:) HEY já muna að það fara alltaf fleiri myndir inná London myndir :)
Best að halda áfram að horfa á Shrek....Donkey er æði :)
3 ummæli:
þetta var svona TTTate dagur hjá ykkur... hvað verða rennibrautirnar lengi?... pant fá að fara líka með næst þegar ég kem :-)
Heyrðu 15 apríl esskan þannig að það er best að gefa í máuhahahahahahah
Ja neydistu til ad horfa a kvikmyndir... haha vaeri meira til i ad vera i thinni stodu. Vonandi ad skolinn hafi byrjad vel. Geggjadar rennibrautir...
Skrifa ummæli