fimmtudagur, mars 8

Einkunn, miskunn, vorkunn

Já ég er búin að fá einkunnirnar mínar :) 2 C og eitt B og því miður fékk ég eitt F. :( En ég fékk blað með ritgerðinni og þar stendur að ég hafi augljóslega misskilið spurninguna og ég fái annað tækifæri til að skila ritgerðinni. Ég er frekar dán yfir þessu en bjartsýn um að ef ég næ að skilja þetta betur fái ég betri einkunn :) Sérstaklega þar sem B ið mitt er í áfanga sem snýst um Academic ritgerðir :)
Guðjóni gengur aftur á móti betur :) Hann fékk boð um að koma í ingönguviðtal hjá UCL :) Fyrir þá sem ekki vita þá er UCL einn af þrem bestu skólum í englandi með Oxford og Cambridge. :) Hann talaði við yfirmenn sína um þetta og þeir vilja allt fyrir hann gera gáfu honum frí til að fara í viðtalið en ef hann heldur áfram að vinna hjá þeim fær hann fullan styrkt í kvöldskólann sem hann vill fara í :) Þeir eru víst mjög ánægðir með hann :)

Við erum mjög spennt yfir að afmælisbarnið hún Ninna er að koma til okkar í næstu viku og ætlar að halda uppá afmælið með okkur :)
Svo er ekki einu sinni mánuður í að Lovísa sæta komi til okkar :)
Jæja best að reyna að halda í bjartsýnina
:) smæl :)

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Frábært hvað gengur vel hjá ykkur ;-) þu bara skilar annari ritgerð og færð miklu betra :) en takk fyrir afmæliskveðjuna i seinustu færlsu :) vona að eg geti komið einhverntimann bráðum til ykkar :)
lov jú
karen

Nafnlaus sagði...

Veistu þetta er bara frábær árangur... Skilar bara inn nyrri ritgerð og brillerar þar. Mér finnst þetta ekki svo slæmar fréttir.
Frábært að heyra með Gaua. Þið hljótið að vera í skýjunum. Til haminguju með allt... Bara gera betur næst. Þið eruð búin að standa ykkur svo vel með allt.
Bestu kveðjur Dögg