Það var deitnæt hjá okkur í gær fórum að borða á Wagamama og svo í bíó á 300. Fín mynd ,rosalega falleg og vel tekin og tónlistin rosalega flott...
Alltaf þegar ég sé svona myndir langar mig rosalega að vera geðveikur stríðstríðmaður, hugrökk sterk og kröftug..þegar í sannleikanum væri ég þessi sem "óvart" misstígur sig og verður að haltra til hliðar...þetta er mjög svipað og þegar ég er búin að vera að horfa mikið á House þá langar mig alveg hroðalega mikið að vera læknir sem er alveg jafn ólíklegt og að ég gerist stríðsmaður í Forn Grikklandi afþví ég er algjör aumingji þegar kemur að blóði og sársauka hvort sem það er minn eigin eða annara...
Talandi um stríð, þá á ég í stríði sjálf þessa daganna og verð því miður að tilkynna að ég er að tapa þessu stríði..
Þetta stríð á ég við dúfur londonborgar. Þetta er búið að loða við síðan ég flutti hingað..þær neita að færa sig þegar ég var að labba framhjá þeim og hef ég oft þurft að snarstoppa eða sveigja fram hjá þeim... Svo fyrir nokkrum vikum sat ég að snæðingi hérna úti á torgi og fann svona líka rosalegt högg á hendina á mér..haldiði að ein af Kamakazee dúfunum hafi SKITIÐ á hendina á mér...ég átti ekki orð en fór úr peysunni sem ég var í og var bara á bolnum..það var alveg nógu hlýtt til þess. Þá finn ég svona líka högg á bakið..þá höfðu þeir greinilega hleypt út alsherjar loftárás á erkióvinin- mig.. ég þurfti að hlaupa heim og henda öllu heila klabbinu í þvottavélani..
Þessu er ekki lokið
Viku seinna var ég að labba með Ninnu á Oxford Street...Þá löbbum við fram á dúfnahóp sem er að hefja sig á loft...finn ég ekki högg á hnakkann...Þá hafði dúfu fæterpælot sleppt brauðsneið á hausinn á mér!!!!!!!!!!! Þetta var nýjast árásin..en í hvert sinn sem ég fer út núna er ég sífellt á verði og er sífellt í varnarstöðu!!!!
En veðrið er alveg æðislegt hérna í london :) 16 stiga hiti og sól :)
Lots of lurv

2 ummæli:
Mér skilst að dúfnasteik geti verið fínasti matur fyrir námsmenn. Spurning um að snúa vörn í sókn :-) Annars brosti ég breitt yfir þessu innslagi þínu og er auðvitað ánægður fyrir ykkar hönd að það sé komið fínasta veður.
hahaha!! Dúfnastríð... Eins og þær eru svo saklausar, svo kúrra þær bara. hahaha æ þetta er bara fyndið. Vonandi að þið hafið það annars gott..
Skrifa ummæli