















Come siete che fate?? Sto facendo la griglia!!! eða það :)
Það var alveg hreint frábært í Róm :)
Fengum alveg dásamlegt veður og náðum að skoða allt sem okkur langaði að skoða :)
Gaui fór meira að segja á spending spree ehehe og keypti sér peysu :)
Þetta er uppáhalds miðjarðahafsborgin okkar og okkur langar pottþétt þangað aftur :)
Ég ætla nú ekki að fara að telja upp alla ferðasöguna en hún er meira og minna sögð í myndum á webshots :) En við fengum að sjá páfan og mín gerði smá skandall þegar ég sprakk út hlátri við viðbrögð nunnana við að sjá kappan...maður beið bara eftir að heilagarbrækur flygu úr áhorfendaskaranum og yfir á kauða.hehgehehe
En við vorum komin frekar seint heim í gær og gaui greyið þurfti svo að mæta í vinnuna snemma í dag þannig að mins fór í super wife mode og tók til og lét renna í bað fyrir hann, kveikti á kertum, setti nýjasta New Scientist, nammi og glas af kók á borð við baðið þannig að hann gat slappað vel af eftir að hann var búin að vinna....er maður Stepford wife eða hvað sko!!!!!
En jæja ég skil ykkur eftir með nokkrar myndir frá Róm :)
Skelli mér í að elda matinn
Stepford wife of the year out...
4 ummæli:
Það er ekki annað að sjá en að þið séuð glansandi hamingjusöm á myndunum og það eru auðvitað gaman að sjá. Frábært hjá ykkur að drífa ykkur í ferðalag.
Ps. Hvað fylgdi með peysunni?
þetta hefur verið rosagóð ferð.
En þið verðið að hafa betri texta við myndirnar. Þið segið ekki bara "flott loft" í sixtinsku kapellunni. þetta eru menningarverðmæti, þeir Leonardo. Rafael, Micaelangelo og Reginvaldur snúa sér við í gröfinni við þessar lýsingar. Það mætti halda að þið væruð að lýsa veggjakroti í strætóskýli á Hverfisgötunni.
Kveðja Reginvaldur AA
unglingar í dag... piff...
;-)
gaaaaaman gaman ;)
Skrifa ummæli